Leolah Brown, systir Bobbi Kristina Brown, fullyrðir að Nick Gordon, kærasti Bobbi, sé undir rannsókn fyrir að hafa reynt að myrða kærustu sína. Þetta kemur fram í opnu bréfi hennar til Dr. Phil.
Bobbi hefur dvalið á sjúkrahúsi í Atlanta í Georgíu frá 31. janúar síðastliðinn, en eins og kunnugt er fannst hún meðvitundarlaus í baðkari á heimili þeirra Gordons og berst hún nú fyrir lífi sínu.
Töluverðir áverkar voru í kringum munn Bobbi og er þess vegna talið líklegt að einhver hafi unnið henni mein og komið henni svo fyrir í baðkarinu. Fregnir hafa hermt að Gordon liggi undir grun.
Leolah gagnrýnir jafnframt í bréfinu til Dr. Phil að hann skuli hafa boðið Gordon til að segja sína sögu í spjallþætti sínum. Hún segir það ekki viðeigandi á meðan aðild hans að mögulegri morðtilraun sé til rannsóknar.
Fregnir herma að Dr.Phil og Gordon munu hittast á næstu dögum til að ræða saman og taka upp þáttinn.