Tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves lýkur með látum í Vodafone höllinni í kvöld, þar sem sveitirnar Hot Chip og FM Belfast munu meðal annarra skemmta lýðnum fram á nótt. Grímur Atlason hátíðarstjóri segir hátíðina hafa gengið vel í ár.
„Hún hefur gengið alveg glimrandi. Ekki hefur verið mikið um raðir og álagið virðist hafa dreifst mjög vel, þar sem allir staðir hafa verið vel þéttir. Það er kúnstin - það er gott að hafa smá raðir en þær mega ekki vera of langar.“
Níu þúsund manns eiga armbönd merkt hátíðinni til að komast inn á tónleikastaði og því ljóst að umfang hennar er verulegt. Grímur segir að stærðin sé á pari við það sem var á síðasta ári. „Off-venue dagskráin er kannski aðeins stærri en í fyrra auk þess sem það eru fleiri atriði á dagskrá en í fyrra,“ segir Grímur og bætir við að off-venue dagskrána sækja um það bil sextíu þúsund manns.
Aðspurður hvort sunnudagskvöldið sé stærsta kvöldið á hátíðinni segir hann það velta á ýmsu. „Það fer eftir því hvernig á það er litið. Hvort sem það er Gus Gus, Beach House, Bubbi og Dimma, Mercury Rev, Saun & Starr eða Hot Chip í kvöld, það fer bara eftir því hvar þú ert staddur í tónlistarsmekknum. En þetta er auðvitað stærsti salurinn, hingað komast um 2.600 manns.“
Grímur áréttar að allir armbandshafar eigi greiða inngöngu í húsið á meðan húsrúm leyfir, en tilkynning verður send út um leið og húsið fyllist. Hann býst við góðu fjöri á þessu lokakvöldi.
„Við keyrum þetta inn í nóttina og deyjum loks í gleði og sátt. Þungur hnífur.“