Það höfðu ekki allir húmor fyrir því þegar Nökkvi Fjalar sat fyrir fólki í undirgöngum klæddur lambúshettu á dögunum. Sem er ekki óeðlilegt kannski en þegar einn þeirra ólansömu, sem hann sat fyrir og heimtaði peningana af, tók upp hamar var ljóst að gamanið var á enda.
Það er því ljóst að Nökkvi getur gengið ansi langt í gríninu og að í undirgöngum í Reykjavík kemur fyrir að fólk gangi með hamar á sér í buxnstrengnum svona til vonar og vara.