Bandaríski leikarinn Brad Pitt hefur verið hreinsaður af öllum grun um að hafa misþyrmt syni sínum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá bandarísku alríkislögreglunni (FBI).
Ásakanir voru bornar á Pitt um að hafa brotið á 15 ára gömlum syni sínum, Maddox, um borð í flugvél á leið frá Frakklandi til Los Angeles í september. Eiginkona Pitts, Angelina Jolie, sakaði hann um að hafa slegið drenginn.
Í tilkynningu sem FBI sendi frá sér í gærkvöldi kemur fram að niðurstaða FBI sé, eftir að hafa farið yfir málavexti, að ekki sé ástæða til þess að rannsaka málið frekar. Engin kæra hafi verið gefin út vegna málsins.
Þetta er í annað skiptið sem Pitt er hreinsaður af sök í málinu en fyrir tveimur vikum birti félagsþjónusta Los Angeles yfirlýsingu um að ekkert bendi til þess að Pitt hafi slegið drenginn. Sú niðurstaða var byggð á viðtölum við Pitt, Jolie, börn þeirra sem og vitni.
Jolie fór fram á skilnað í september. Hún fer fram á að fá fullt forræði yfir börnunum þeirra sex. Pitt, sem fékk Óskarsverðlaunin fyrir að framleiða kvikmyndina 12 Years a Slave (2013), hefur verið í sambandi við börnin sex og fer fram á sameiginlegt forræði yfir þeim.
Eins og staðan er í dag þá er Jolie með forræði yfir börnunum tímabundið og býr með þeim í húsi sem hún leigir í Los Angeles. Pitt var viðstaddur frumsýningu myndarinnar Allied í Madrid á Spáni í gærkvöldi en hann leikar aðalhlutverk myndarinnar ásamt frönsku leikkonunni Marion Cotillard.