Helgi Jean Classen og Hjálmar Örn Jóhannsson stýra hlaðvarpinu Hæ hæ. Héðan í frá verða þættirnir aðgengilegir inni á mbl.is.
Í þættinum fara strákarnir inn á Island.is - en þar er gagnagrunnur sem geymir meðal annars gömlu einkunnir Hjálmars úr menntaskóla, en hann féll glæsilega í nánast öllum fögum.
Í pub-quiz var spurt um hvaða íslenska bíómynd er með mesta aðsókn á heimsvísu.
Í með og á móti var rætt hvort það væri í lagi að taka mat af diski hjá vini sínum.
Í Topp 5 var farið yfir af hverju maður ætti að taka stökkið og láta drauma sína rætast.
Í leikþættinum heimsótti Sindri Sindrason pilt sem var nýskriðinn úr MR - og ræddi hvernig hann náði að fjármagna einbýlishús á Laufásvegi.