Heimþrá hins heimilislausa

Úr Ya no estoy aquí eða Nú er ég ekki …
Úr Ya no estoy aquí eða Nú er ég ekki hér.

Ya no estoy aquí er önn­ur frá­sagn­ar­mynd mexí­kóska leik­stjór­ans Fern­andos Frías de la Parra. Mynd­in var sýnd á nokkr­um kvik­mynda­hátíðum árið 2019 en var svo frum­sýnd á Net­flix í vor, skrif­ar Brynja í rýni sinni. Hér sé á ferðinni virki­lega fersk kvik­mynd, vel gerð, sviðsmynd og mynda­taka frá­bær og tón­list­in æðis­leg. 

„Mynd­in seg­ir frá hinum 17 ára gamla Ulises, sem býr í fá­tækra­hverfi í borg­inni Monter­rey í Mexí­kó. Monter­rey er gegn­sýrð af glæp­um og í mörg­um hverf­um ráða glæpa­geng­in nán­ast öllu, þau sjá um „lög­gæslu“, eru aðal­at­vinnu­rek­end­urn­ir og ann­ast líka stund­um hálf­gild­ings vel­ferðarþjón­ustu.

Ulises til­heyr­ir gengi sem kall­ar sig „Los Ter­kos“. Þau eru þó ekki glæpa­gengi held­ur meira eins og lítið sam­fé­lag sem aðhyll­ist „kolomb­ia“-hliðar­menn­ing­una. Kolomb­iakúltúr­inn hverf­ist í kring­um tón­list­ar­stefn­una „cumb­ia rebajada“, þ.e. hæg­ar út­gáf­ur af kól­umb­ísk­um cumb­ia-lög­um. Þetta minn­ir á „chopp­ed and screwd“-hliðar­stefn­una í hipp­hoppi, sem geng­ur út á að end­ur­hljóðblanda lög og hægja veru­lega á takt­in­um. Kolomb­ia-krakk­arn­ir klæða sig líka á sér­stak­an hátt og pilt­arn­ir eru með brjálaða hár­greiðslu. Þau hlusta á cumb­ia rebajada all­an liðlang­an dag­inn og dansa við tón­list­ina. Ulises er besti dans­ar­inn í hópn­um og vinn­ur iðulega í danskeppn­um sem krakk­arn­ir taka þátt í.

Ulises og vin­ir hans eiga ekki snjallsíma eða tón­hlöður og verða því að hlusta á tón­list­ina í út­varp­inu. Dag einn finna krakk­arn­ir mp3-spil­ara á götu­markaði sem er sneisa­full­ur af cumb­ia-tónlist sem þau hrein­lega verða að eign­ast. Þau fara að betla pen­inga en lenda upp á kant við nokkra glæpona úr Los F-glæpa­geng­inu.

Fyr­ir hálf­gerðan mis­skiln­ing fær Ulises Los F upp á móti sér og það end­ar ekki bet­ur en svo að hann þarf að flýja land. Hon­um er smyglað ólög­lega til Banda­ríkj­anna, alla leið til New York, þar sem hann fær vinnu og húsa­skjól í gegn­um sam­bönd. En Ulises er bara ung­ling­ur og hon­um reyn­ist erfitt að ná átt­um í borg­ar­frum­skóg­in­um,“ skrif­ar Brynja. 

Mynd­in inni­held­ur mörg frá­bær tón­list­ar- og dans­atriði, að mati Brynju sem seg­ir kól­umb­íska cumb­ia-mús­ík  ein­hverja þá bestu í heim­in­um, upp­fulla af gleði og trega. „Hér er dreg­in upp mjög inni­leg og sann­fær­andi mynd af ung­um manni sem þarf að halda í mikið ferðalag til þess að kom­ast aft­ur heim. Að því leyti minna raun­ir hans á þær sem nafni hans Ódysseif­ur lenti í forðum. Spurn­ing­in er svo hvort hann geti nokk­urn tím­ann átt heim­ili aft­ur, því hann er á milli heima. Hann gæti átt betra líf í Banda­ríkj­un­um en hann vill ekki vera þar, hann vill vera heima með vin­um sín­um en þar er allt breytt líka. Þetta er ekki bara sama sag­an um fá­tæk­ling sem ferðast norður á bóg­inn í von um betra líf held­ur karakt­er­stúd­ía sem tekst á við hina marg­brotnu heimþrá þess sem á hvergi heima,“ seg­ir í niður­lagi gagn­rýn­inn­ar en mynd­ina má finna á Net­flix. 

Hér má svo hlusta á Brynju ræða við Helga Snæ Sig­urðsson, blaðamann á menn­ing­ar­deild Morg­un­blaðsins, um mynd­ina í kvik­mynda­hlaðvarp­inu BÍÓ. 

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Deildu því sem þú veist og hvettu þá sem vanir eru að liggja á sínu, til þess að slaka aðeins á. Gerðu þér glaðan dag en mundu að á morgun bíður þín nýtt verkefni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Deildu því sem þú veist og hvettu þá sem vanir eru að liggja á sínu, til þess að slaka aðeins á. Gerðu þér glaðan dag en mundu að á morgun bíður þín nýtt verkefni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup