Beckham-hjónin sögð hafa smitast

David og Victoria Beckham eru sögð hafa veikst af kórónuveirunni …
David og Victoria Beckham eru sögð hafa veikst af kórónuveirunni í mars. AFP

Dav­id og Victoria Beckham eru sögð hafa smit­ast af kór­ónu­veirunni. Hjón­in eru tal­in hafa smit­ast í Banda­ríkj­un­um í byrj­un mars að því er fram kem­ur á vef The Sun. Beckham-hjón­in hafa ekki tjáð sig um veik­ind­in. 

„Þetta var al­gjör mar­tröð,“ sagði vin­ur hjón­anna. Knatt­spyrnu­hetj­an var að koma fót­boltaliði sínu í Miami af stað og fór Victoria Beckham og fjöl­skylda frá Bretlandi til Banda­ríkj­anna til að styðja við nýj­asta verk­efni Dav­ids Beckhams. Meðan á ferðinni stóð fóru þau á marga viðburði og hittu fjöld­ann all­an af fólki. 

„Þau flugu síðan aft­ur til London og fóru beint á sveita­set­ur sitt í Cotswolds,“ sagði vin­ur­inn. Hjón­in héldu upp á af­mæli elsta son­ar síns í Bretlandi en hann á af­mæli í byrj­un mars. Hjón­in eru sögð hafa flogið aft­ur til Banda­ríkj­anna, Miami nán­ar til­tekið.

Þegar hjón­in komu til baka byrjaði Dav­id Beckham að líða illa og svo fékk Victoria Beckham háls­bólgu og hita. Á sama tíma voru bíl­stjór­ar, líf­verðir og aðstoðarfólk hjón­anna veik. 

„Victoria var skelf­ingu lost­in og lét alla fjöl­skyld­una fara í sótt­kví í meira en tvær vik­ur,“ sagði vin­ur­inn. Á frú Beckham að hafa talið að þau væru of­ursmit­ar­ar, næstu vik­ur voru erfiðar en hjón­in eru sögð hafa gert allt til að minnka lík­ur á frek­ara smiti. 

David og Victoria Beckham.
Dav­id og Victoria Beckham. AFP

Hjón­in smituðust mögu­lega 1. mars þegar lið Beckhams spilaði fyrsta úti­leik sinn í Los Ang­eles. Beckham var þar ásamt fjöl­skyldu sinni. Hinn 6. mars héldu þau íburðar­mikið af­mæli fyr­ir son sinn Brook­lyn í Bretlandi. Hjón­in flugu síðan til Miami en knatt­spyrn­u­stjarn­an birti mynd­ir af velli liðsins á sam­fé­lags­miðlum. Fyrsta heima­leikn­um var þó frestað vegna kór­ónu­veirunn­ar.  

Hjón­in eru sögð hafa farið í mót­efna­mæl­ingu áður en þau ferðuðust um Evr­ópu í sum­ar. 

Talsmaður hjón­anna neitaði að tjá sig um málið. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Sporðdreki

Sign icon Í dag standa hlutirnir ekki í stað nema þú viljir það endilega. Gættu þín á að vera ekki óþolinmóður gagnvart þeim sem standa þér næst.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Sporðdreki

Sign icon Í dag standa hlutirnir ekki í stað nema þú viljir það endilega. Gættu þín á að vera ekki óþolinmóður gagnvart þeim sem standa þér næst.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir