Borat á tímum Trumps

Maria Bakalova og Sacha Baron Cohen í hlutverkum Borat og …
Maria Bakalova og Sacha Baron Cohen í hlutverkum Borat og dóttur hans Tutar í Borat Subsequent Moviefilm.

Gunn­ar Ragn­ars­son kvik­mynda­gagn­rýn­andi fjall­ar um gam­an­mynd­ina Borat 2 í Morg­un­blaðinu í dag, eða Borat Su­bsequ­ent Movi­ef­ilm: Deli­very of Prodigi­ous Bri­be to American Regime for Make Be­nef­it Once Glori­ous Nati­on of Kazakhst­an, eins og tit­ill­inn er í heild sinni. Sem fyrr seg­ir af fá­fróða og for­dóma­fulla blaðamann­in­um Borat Sagd­iyev frá Kasakst­an sem er vin­sæl­asta sköp­un­ar­verk breska grín­ist­ans Sacha Barons Cohens.

„Aðferðafræði fyrri mynd­ar­inn­ar fólst í því að fá ýmsa raun­veru­lega viðmæl­end­ur til viðtals við Borat und­ir því yf­ir­skini að hann sé raun­veru­leg per­sóna að vinna frétta­efni fyr­ir heima­land sitt. Útkom­an var auðvitað drep­fynd­in, en um leið sjokk­er­andi og upp­ljóstrandi afurð sem sýndi fram á djúp­stæða kven­fyr­ir­litn­ingu, ras­isma og gyðinga­hat­ur inn­an ákveðins menn­ing­arkima Banda­ríkj­anna,“ skrif­ar Gunn­ar m.a. og að kynn­gi­mögn­un­in hafi einnig fal­ist í leikn­um og  bund­in heim­ild­ar­háði Borats; hvaða at­vik voru sviðsett og hver ekki – og spurn­ing­unni um áreiðan­leika þess sem fyr­ir augu bar. „Þess­ir meg­inþætt­ir fyrri mynd­ar­inn­ar, ómannúðleg viðhorf og af­stæðis­stefna gagn­vart sann­leik­an­um, hafa auðvitað færst upp á yf­ir­borðið og fest sig í sessi í meg­in­straumi banda­rískra stjórn­mála með raun­veru­leika­sjón­varps­stjörn­una Don­ald Trump í for­seta­stóli. Það er til marks um spá­dóms­gildi Borats þegar enduróm­ur absúr­dískr­ar banda­rískr­ar mann­hat­ursorðræðu er far­inn að birt­ast hér á landi í orðum for­manns ís­lensks stjórn­mála­flokks og víðar. Við lif­um öll í heimi Borats, að því er virðist– en fer þess­ari mar­tröð aldrei að ljúka?“ skrif­ar Gunn­ar. 

Tíma­setn­ing út­gáfu Borats eft­ir­far­andi bíókvik­mynd­ar sýn­ir fram á póli­tísk­an út­gangspunkt verks­ins, skrif­ar rýn­ir en enda­titl­ar mynd­ar­inn­ar hvetja fólk bein­lín­is til að kjósa í kom­andi for­seta­kosn­ing­um. „Allt bend­ir þetta til þess að grínið standi höll­um fæti og sé ætlað að falla um sjálft sig. Að vissu leyti kem­ur því á óvart að Borat eft­ir­far­andi bíókvik­mynd er ansi fynd­in á köfl­um og nær þar með eig­in­leg­um til­gangi sín­um.“

Gunn­ar seg­ir mun­inn á fyrri mynd­inni um Borat og Borat eft­ir­far­andi bíókvik­mynd þann að öll ný­lunda sé nú fyr­ir bí. „Sam­særis­kenn­ing­arn­ar og kven­fyr­ir­litn­ing eru dag­legt brauð frá helstu ráðamönn­um Banda­ríkj­anna og Cohen er því ekki að fletta ofan af neinu hér. Covid-19 er smeygt listi­lega inn í at­b­urðarás­ina og verkið er því kirfi­lega staðsett á þessu til­tekna sögu­lega augna­bliki. Tím­inn á eft­ir að leiða í ljós hvernig mynd­in eld­ist en þó er merki­legt að sjá kvik­mynd ávarpa sam­tíma sinn með jafn bein­um hætti. Spurn­ing er hvort þetta sé þróun sem mun fær­ast í vöxt með breyttu kvik­mynda­lands­lagi streym­isveitn­anna. Borat eft­ir­far­andi bíókvik­mynd er ekki síst áhuga­verð sem menn­ing­ar­leg­ur viðburður líðandi stund­ar. Sem grín­mynd er hún líka fín­asta skemmt­un,“ skrif­ar Gunn­ar en dóm­inn má lesa í heild í Morg­un­blaðinu í dag, 29. októ­ber 2020. Hér fyr­ir neðan má svo finna kvik­mynd­hlaðvarpsþátt­inn um mynd­ina. 

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vatnsberi

Sign icon Verkefni sem þú vinnur að fær meiriháttar undirtektir. Heimurinn vill frá þér það sem aðeins þú getur gefið honum, en ekki meira.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vatnsberi

Sign icon Verkefni sem þú vinnur að fær meiriháttar undirtektir. Heimurinn vill frá þér það sem aðeins þú getur gefið honum, en ekki meira.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup