„Ástandið var slæmt þarna úti“

Aníta Briem í Ráðherranum.
Aníta Briem í Ráðherranum.

Leik­kon­an Aníta Briem er gest­ur kvik­mynda­hlaðvarps­ins BÍÓ að þessu sinni en hún hef­ur vakið mikla at­hygli und­an­farið fyr­ir vandaðan leik í sjón­varpsþáttaröðinni Ráðherr­an­um sem sýnd var á RÚV. Aníta er flutt aft­ur til Íslands eft­ir langa dvöl í Los Ang­eles og unir hag sín­um vel. Hún hef­ur nóg að gera, fer með hlut­verk í þrem­ur ís­lensk­um kvik­mynd­um, þ.e. Skjálfta,  Svari við bréfi Helgu og Ber­d­reymi og einni er­lendri, Selfie, þar sem hún leik­ur á móti Ter­rence How­ard. 

„Þetta er búið að vera ótrú­lega skemmti­legt ferli og þessi tími all­ur. Maður fær fullt af fiðrild­um í mag­ann þegar eitt­hvað svona er að fara í loftið sem maður er bú­inn að vinna hörðum hönd­um að og þykir ótrú­lega vænt um,“ seg­ir Aníta um Ráðherr­ann. „Ég er búin að fá svo góð viðbrögð frá fólki og mikið af ókunn­ugu fólki er að koma upp að manni í Mela­búðinni eða Kringl­unni.“

Var kom­in að þol­mörk­um

Aníta seg­ist hafa fengið mjög já­kvæð viðbrögð við því að hún sé nú flutt aft­ur til Íslands. „Mér finnst svo æðis­legt að vera kom­in heim,“ seg­ir hún. „Mér finnst bara allt dá­sam­legt við að vera hérna heima,“ seg­ir Aníta og hlær. Við tök­ur á Ráðherr­an­um í fyrra hafi hún áttað sig á því að hún væri kom­in að þol­mörk­um hvað varðar ákveðinn kúltúr í Los Ang­eles. Hún hafi áttað sig bet­ur á því hvað væri henni virki­lega mik­il­vægt. Tæki­fær­in séu líka mörg á Íslandi og mikið að ger­ast í kvik­mynda­gerð. 

Ástandið slæmt 

Aníta er spurð út í #met­oo-bylt­ing­una, hvernig hún hafi upp­lifað hana í Hollywood. „Ég áttaði mig eng­an veg­inn á því hvað ástandið var slæmt þarna úti og ég lenti rosa­lega mikið í því og oft bara mjög illa,“ seg­ir Aníta. Ung­ar leik­kon­ur hafi oft verið sett­ar í hræðileg­ar aðstæður þar sem kúltúr­inn hjá karl­kyns fram­leiðend­um og yf­ir­mönn­um í kvik­mynda­brans­an­um hafi verið orðinn þannig að ákveðnum óskrifuðum regl­um væri fylgt. „Það þarf ekki að vera bók­staf­lega að sofa hjá ein­hverj­um, það get­ur verið að fólk bú­ist við að þú sért bara til í að eyða ein­hverj­um kvöld­um í ógeðsleg­um par­tí­um og að vera til skrauts,“ seg­ir Aníta og eðli­legt talið og ætl­ast til þess að unga leik­kon­ur daðri. „Þetta var al­gjör­lega menn­ing­ar­heim­ur­inn þegar ég labbaði þarna inn, 24 ára, og hafði eng­an og fólkið sem var að leiðbeina manni var al­gjör­lega samdauna þess­um kúltúr og var ein­hvern veg­inn að leiðbeina manni inn í þetta.“

Hér fyr­ir neðan má finna þátt­inn með Anítu. 

Þann 20.nóv­em­ber nk. kem­ur út fyrsta þröngskífa (EP) ís­lenska tón­list­ar­manns­ins Daní­els Hjálm­týs­son­ar.
Daní­el, sem vakið hef­ur tölu­verða eft­ir­tekt hér heima og er­lend­is síðustu ár m.a. með hliðar­verk­efni sínu HYOWLP árið 2018, sendi frá sér sína fyrstu sólós­má­skífu þann 3.janú­ar sl. Lagið kallaðist Birds og inni­hélt gestafram­komu hol­lenska strengja­kvart­etts­ins Red Limo Quartet (Eddie Vedder, Mark Laneg­an, Sevdaliza), sem Daní­el hafði kynnst árið 2013 þegar hann flutti inn einn sinn helsta áhrifa­vald til tveggja tón­leika í Frí­kirkj­unni, Mark Laneg­an. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Naut

Sign icon Málefni sem tengjast fjarlægum löndum, fjölmiðlum og frekari mentun eru í brennidepli þessa stundina. Mundu bara að þú ert ekki einn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Col­leen Hoo­ver
3
Torill Thorup
4
Lotta Lux­en­burg
5
Satu Rämö
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Naut

Sign icon Málefni sem tengjast fjarlægum löndum, fjölmiðlum og frekari mentun eru í brennidepli þessa stundina. Mundu bara að þú ert ekki einn.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Col­leen Hoo­ver
3
Torill Thorup
4
Lotta Lux­en­burg
5
Satu Rämö