Kvikmynd fyrir bíónörda

Gary Oldman í hlutverki Herman Mankiewicz í Mank.
Gary Oldman í hlutverki Herman Mankiewicz í Mank.

Nýj­asta kvik­mynd Dav­id Fincher, Mank, er til skoðunar í nýj­asta þætti kvik­mynda­hlaðvarps­ins BÍÓ en mynd­in var gagn­rýnd í Morg­un­blaðinu 10. des­em­ber og hlaut tvær og hálfa stjörnu í ein­kunn. Þótti rýni hand­ritið helsti galli mynd­ar­inn­ar sem fjall­ar um ann­an af tveim­ur hand­rits­höf­und­um Cit­izen Kane, Herm­an Mankiewicz sem kallaður var Mank. 

Gagn­rýn­andi, Gunn­ar Ragn­ars­son, skrif­ar m.a: „Frá­sögn­in hefst í hröðum takti og er áhorf­anda fleygt í miðja hringiðu Hollywood fjórða ára­tug­ar­ins. Nöfn stjarna og valda­stólpa líðandi stund­ar hrynja af vör­um per­són­anna – og fyr­ir­fram­gef­in þekk­ing á þeim virk­ar sem menn­ing­ar­leg­ur aðgangs­eyr­ir. Svart­hvít og lip­ur kvik­mynda­taka reyn­ir að fanga áferð og aðdrátt­ar­afl gull­ald­ar klass­ísku Hollywood. Nostal­g­ísk sta­f­ræn áran, og meðfylgj­andi til­bú­in för og blett­ir í „ræmunni“, er þó ei­lítið trufl­andi í til­gerðinni.“

Hér má sjá stiklu kvik­mynd­ar­inn­ar:

Gunn­ar seg­ir Mank hafa verið minni hátt­ar spá­mann í ver­öld drauma­verk­smiðjunn­ar og hluta af hand­rit­steymi MGM-stúd­íós­ins. „Í raun er hann nokkuð hefðbund­in am­er­ísk hetja – drykk­felld­ur ein­fari, sem fer sín­ar eig­in leiðir inn­an kerf­is­ins. Þykk­ur skráp­ur hnytt­inna til­svara dyl­ur aðeins að tak­mörkuðu leyti eðli rétt­láta ridd­ar­ans. Brans­inn hef­ur leikið karl­inn grátt en hann ligg­ur fót­brot­inn á sjúkra­beði eft­ir bíl­slys. 24 ára að aldri hef­ur undra­barnið Or­son Well­es lagt út­varp og leik­hús­heim­inn að fót­um sér og fengið frjáls­ar hend­ur til að leik­stýra sinni fyrstu kvik­mynd al­farið eft­ir eig­in höfði. Well­es býður Mank að skrifa hand­ritið og er sjúk­lingn­um komið á sveita­sveit­ur þar sem ætl­un­in er að halda hon­um frá víni og aðstæður til að skrifa kjörn­ar. Stiklað er á stóru um tveggja mánaða skrift­ar­ferlið en á milli þess bregður frá­sögn­in sér reglu­lega aft­ur í tím­ann til at­b­urða í lífi Manks (en á afar sjálfmeðvitaðan hátt eru þess­ir kafl­ar auðkennd­ir sem „end­ur­lit“ með skjá­titl­um líkt og mætti finna í kvik­mynda­hand­riti) sem eiga að skýra inn­blást­ur og sköp­un­ar­sögu að hand­riti Mankiewicz,“ skrif­ar Gunn­ar og að á kald­hæðnis­leg­an máta sé hand­rit Mank henn­ar veik­asti punkt­ur. „Höfuðsynd þess er að byggja á og viðhalda þeirri al­röngu mein­ingu að Herm­an Mankiewicz hafi nán­ast óstudd­ur staðið að hand­riti Kane og að Well­es hafi viljað snuða hann um viður­kenn­ingu. Þessi hug­mynd er reist á frægri grein frá upp­hafi átt­unda ára­tug­ar­ins eft­ir kvik­myndarýn­inn Paul­ine Kael en hún gekk með skrif­un­um vís­vit­andi gegn ríkj­andi viðhorfi um leik­stjór­ann sem höf­und kvik­mynda. Síðan þá hef­ur hand­rit Borg­ara Kane verið birt á mörg­um mis­mun­andi vinnslu­stig­um þess og þær rann­sókn­ir hafa sýnt fram á með af­drifa­rík­um hætti að hand­rit þess var unnið í sam­starfi Mankiewicz og Well­es með aðkomu Johns Hou­sem­ans. Mank fer á þenn­an hátt rang­lega með staðreynd­ir (sem er auðvitað eng­in ný­lunda í bíói) og bæt­ir í safn skáld­verka sem sýna per­sónu Well­es í ann­ar­legu ljósi,“ skrif­ar Gunn­ar en dóm­inn í heild má lesa í Morg­un­blaðinu 10. des­em­ber. 

Hér fyr­ir neðan má finna hlaðvarpsþátt­inn þar sem þeir Gunn­ar, Helgi Snær Sig­urðsson og Þórodd­ur Bjarna­son ræða sam­an um Mank. 

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Sporðdreki

Sign icon Taktu það ekki nærri þér þótt til einhverra orðaskipta komi milli þín og vinar þíns út af fjármálum. Beygðu þig undir forystu aðila sem þú virðir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Col­leen Hoo­ver
3
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
4
Torill Thorup
5
Lotta Lux­en­burg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Sporðdreki

Sign icon Taktu það ekki nærri þér þótt til einhverra orðaskipta komi milli þín og vinar þíns út af fjármálum. Beygðu þig undir forystu aðila sem þú virðir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Col­leen Hoo­ver
3
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
4
Torill Thorup
5
Lotta Lux­en­burg