Þau voru hætt saman: Rúrik hunsaði Soliani

Rúrik Gíslason og Nathalia Soliani.
Rúrik Gíslason og Nathalia Soliani. Skjáskot/Instagram

Ekki eru öll kurl kom­in til graf­ar varðandi sam­bands­mál fyrr­ver­andi landsliðsmanns í knatt­spyrnu Rúriks Gísla­son­ar. Svo virðist sem að Rúrik hafi slitið sam­bandi sínu við bras­il­ísku fyr­ir­sæt­una Nathaliu Soli­ani fyr­ir nokkr­um vik­um. Hún hafi hins veg­ar haldið í von­ina á meðan Rúrik og þýska stór­stjarn­an Valent­ina Pahde hitt­ust dag­lega í Let's Dance sótt­varn­ar­búbblunni sem þau voru í á meðan keppn­inni stóð yfir.  

Reyndi að fanga at­hygli Rúriks

Mik­il reiði er í garð Rúriks Gísla­son­ar frá aðdá­end­um Nathaliu Soli­ani eins og má sjá í at­huga­semd­um í mynd hér að neðan. Aðdá­end­ur Soli­ani standa þeir í þeirri trú að Rúrik hafi farið á bak við hana og haldið fram hjá henni með Valentínu Pahde.

Aðdáendur Soliani eru bálreiðir út í Rúrik
Aðdá­end­ur Soli­ani eru bál­reiðir út í Rúrik Skjá­skot/​In­sta­gram

Ef rýnt er í In­sta­gram-reikn­inga Rúriks og Soli­ani má sjá að síðustu sam­skipti Rúriks við Soli­ani voru 29. mars. „Frá­bær mynda­taka,“ skrif­ar Rúrik. Hjarta og broskall fylgja at­huga­semd­inni. Á þeim tíma var Let's Dance byrjað í Þýskalandi og hún var aldrei sjá­an­leg með hon­um á þeim tíma sam­kvæmt þýsk­um fjöl­miðlum.

Hinsta kveðja Rúriks til Soliani á Instagram
Hinsta kveðja Rúriks til Soli­ani á In­sta­gram Skjá­skot/​In­sta­gram

Eft­ir þessa at­huga­semd svaraði Rúrik fyrr­ver­andi kær­ustu sinni ekki aft­ur. Hún óskaði hon­um til ham­ingju með ár­ang­ur­inn í Let's Dance aft­ur og aft­ur, án þess að Rúrik líkaði við skila­boðin henn­ar á In­sta­gram-mynd­un­um sem hann setti inn. Hún vonaði svo inni­lega að sam­bandið væri ekki búið. 24. apríl sagði hún: „Já ást­in mín!!! Ans­ans þið tvö voruð æði.“ Rúrik virti þessa kveðju ekki viðlits.

Skjá­skot/​In­sta­gram

Soli­ani gafst samt ekki upp. 22. maí set­ur hún at­huga­semd við mynd Rúriks þegar ljóst var að hann komst í úr­slit Let's Dance: „Til ham­ingju elsk­an þú verðskuld­ar að kom­ast í úr­slit­in.“ Hún læt­ur fylgja með hjarta og broskall með hjarta í aug­un­um en aft­ur þá svaraði Rúrik henni ekki.

Skjá­skot/​In­sta­gram

Þegar kem­ur að sigri Rúriks á loka­kvöld­inu birt­ir hann mynd af sér á In­sta­gram, hann klædd­ur eins og Þrumuguðinn Þór, með ham­ar í ann­arri og sig­ur­verðlaun­in í hinni. Í síðasta sinn reyn­ir fyrr­ver­andi kær­asta Rúriks að vinna hann til­baka og seg­ir fyrst á portú­gölsku: „Til ham­ingju sig­ur­veg­ari!! Því­líkt ferðalag! Ég vona að þú sért jafn stolt­ur af sjálf­um þér og við erum!,“ hún læt­ur fylgja með hjarta og önn­ur viðeig­andi lynd­is­tákn. Rúrik svar­ar þessu ekki frek­ar en öðrum skila­boðum frá henni.

Skjá­skot/​In­sta­gram

Valent­ina Pahde

Pahde er ein fræg­asta leik­kona Þýska­lands og það er ástæða þess að þýsk­ir fjöl­miðlar hafa svona mik­inn áhuga á þess­ari ástar­sögu. Pahde byrjaði að líka mynd­ir Rúriks á þeim tíma sem keppn­in hófst. Sam­kvæmt heim­ild­um var sam­band þeirra baksviðs „raf­magnað“ og heim­ild­ir segja að þau hafi byrjað að stinga sam­an nefj­um í apríl eða á nokkr­um vik­um áður en Rúrik hætt­ir að tjá sig op­in­ber­lega á In­sta­gram við Soli­ani.

Valentina Pahde á grísku eyjunni Mykonos
Valent­ina Pahde á grísku eyj­unni My­konos Skjá­skot/​In­sta­gram

Valent­ina Pahde og Rúrik halda svo áfram frá miðjum apríl að líka við mynd­ir hvors ann­ars á meðan Rúrik svar­ar ekki Nathaliu Soli­ani sem reyn­ir ít­rekað að setja inn at­huga­semd­ir við mynd­irn­ar hans á In­sta­gram. Svo fyr­ir viku síðan birt­ir Pahde mynd af sér á In­sta­gram frá Let's Dance og í fyrsta skipti svar­ar Rúrik Gísla­son sem þykir merki­legt því Rúrik er ekki van­ur að tjá sig á In­sta­gram við mynd­ir hjá öðrum, en hann seg­ir: „Frá­bær dans. Óaðfinn­an­leg­ur og þið getið verið stolt. Það hef­ur verið stór­kost­legt að taka þátt í Let's Dance með ykk­ur báðum. Ég er svo glaður að hafa kynnst þér.“ Loka­setn­ing­unni fylg­ir kyss­andi broskall. Það er nokkuð ljóst að Rúrik er ást­fang­inn á ný því Valent­ina Pahde svar­ar Rúrík með þrem­ur hjört­um og sagði svo í In­sta­story að hún væri ekki leng­ur ein­hleyp.

Skjá­skot/​In­sta­gram
Skjá­skot/​In­sta­gram



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Steingeit

Sign icon Áætlanir ganga upp þegar þú treystir eigin dómgreind. Ekki þurfa stöðugt að leita utanaðkomandi samþykkis. Þú veist meira en þú heldur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
2
Eva Björg Ægis­dótt­ir
4
Mohlin & Nyström
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Steingeit

Sign icon Áætlanir ganga upp þegar þú treystir eigin dómgreind. Ekki þurfa stöðugt að leita utanaðkomandi samþykkis. Þú veist meira en þú heldur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
2
Eva Björg Ægis­dótt­ir
4
Mohlin & Nyström