Hættu að ræða seríu tvö eftir ásakarnirnar

Umræður um aðra seríu af And Just Like That hurfu …
Umræður um aðra seríu af And Just Like That hurfu um leið og ásakanirnar gegn Chris Noth komu fram. AFP

Inn­an fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­is HBO hafði verið rætt um að gera aðra seríu af þátt­un­um And Just Like That. Umræðan um aðra seríu hætti um leið og ásak­an­irn­ar gegn ein­um aðalleik­ar­ana, Chris Noth komu fram. Tvær kon­ur stigu fram stuttu eft­ir frum­sýn­ingu fyrstu tveggja þátt­anna og sögðu Noth hafa brotið á sér kyn­ferðis­lega fyr­ir um ára­tug síðan. 

„Það var búið að tala um að gera aðra seríu, en eft­ir síðustu daga hafa þessi sam­töl al­gjör­lega þurrk­ast út. All­ir eru mjög viðkvæm­ir,“ sagði heim­ildamaður Us Weekly um málið. 

And Just Like That eru fram­haldsþætt­ir af þátt­un­um vin­sælu Sex and the City. Noth fer með veiga­mikið hlut­verk í báðum serí­um en með aðal­hlut­verk í serí­un­um fara þær Sarah Jessica Par­ker, Krist­in Dav­is og Cynt­hia Nixon. 

Noth hef­ur neitað ásök­un­um kvenn­anna sem tjáu sig fyrst við The Hollywood Report­er. Þá hafa tvær aðrar kon­ur stigið fram og lýst óviðeig­andi hegðun hans. 

Par­ker, Dav­is og Nixon sendu frá sér til­kynn­ingu í kjöl­far frá­sagn­anna og sögðust standa með þolend­um.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vog

Sign icon Það er sjálfsagt að lífga upp á tilveruna með léttu gríni ef þú gætir þess bara að það sé ekki á annarra kostnað. Mættu erfiðleikum með bros á vör.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Col­leen Hoo­ver
3
Torill Thorup
4
Lotta Lux­en­burg
5
Satu Rämö
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vog

Sign icon Það er sjálfsagt að lífga upp á tilveruna með léttu gríni ef þú gætir þess bara að það sé ekki á annarra kostnað. Mættu erfiðleikum með bros á vör.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Col­leen Hoo­ver
3
Torill Thorup
4
Lotta Lux­en­burg
5
Satu Rämö