Hegðun Smiths athuguð formlega

Will Smith fór upp á svið og sló Chris Rock. …
Will Smith fór upp á svið og sló Chris Rock. Akademían fordæmir atvikið og hefur formlega athugun á málinu. AFP

Bandaríska kvikmyndaakademínan mun setja af stað formlega athugun á atvikinu sem stal sviðsljósinu á Óskarsverðlaunahátíðinni í nótt – þegar Will Smith veitti Chris Rock kinnhest. 

Akademían fordæmir framferði Smith og greinir frá því í yfirlýsingu sem send var út í kvöld og bendir hún til þess að Smith gæti þurft að glíma við einhverjar afleiðingar vegna framkomu sinnar.

„Við höfum sett af stað formlega athugun á athæfinu og munum kanna mögulegar afleiðingar hennar með hliðsjón af okkar eigin reglum, meginreglum og lögum Kaliforníuríkis.“

Fram hefur komið að Rock mun ekki leita til dómstóla vegna kinnhestsins en þeir Smith þekkjast ágætlega. Stuttu eftir kinnhestinn hreppti Smith Óskarsverðlaun fyrir aðahlutverk í kvik­mynd­inni King Rich­ard.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þráir öryggi í samböndum þínum en eitthvað hefur það gengið brösuglega hingað til. Þú lætur gott af þér leiða í dag og færð hrós fyrir það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Torill Thorup
4
Yrsa Sigurðardóttir
5
Sarah J. Naughton
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú þráir öryggi í samböndum þínum en eitthvað hefur það gengið brösuglega hingað til. Þú lætur gott af þér leiða í dag og færð hrós fyrir það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Torill Thorup
4
Yrsa Sigurðardóttir
5
Sarah J. Naughton