Brotist inn hjá Beckham-fjölskyldunni

David og Victoria Beckham.
David og Victoria Beckham. AFP

Beckham-fjöl­skyld­an varð fyr­ir barðinu á inn­brotsþjófi á dög­un­um. Talið er að inn­brjótsþjóf­ur­inn sé einn liðsmanna af­brotaklíku sem braust inn í að minnsta kosti tvö önn­ur hús á svæðinu á sama tíma. 

Dav­id, Victoria og dótt­ir þeirra, Harper Beckham, voru í fasta svefni þegar inn­brotsþjóf­ur­inn lét til skar­ar skríða. Þjóf­ur­inn er sagður hafa farið inn um glugga á svefn­her­bergi á efri hæð húss­ins á meðan þríeykið svaf sínu vær­asta á neðri hæðinni. 

Fjöl­skyld­an býr í glæsi­hýsi í London, höfuðborg Bret­lands. Heim­ili fjöl­skyld­unn­ar er staðsett skammt frá Hol­land Park-garðinum við ríkra manna hverfið í Kengs­ingt­on og er metið á 40 millj­ón­ir punda. 

Inn­brotið upp­götvaðist ekki fyrr en son­ur þeirra, Cruz, kom heim eft­ir að hafa verið úti að skemmta sér um­rædda nótt. Þegar Cruz kom heim tók hann eft­ir brotn­um glugga og varð hann var við gler­brot um allt. Inn­brotsþjóf­ur­inn lét greip­ar sópa og hafði á brott með sér mikið magn af verðmæt­um ef marka má frétt frá Daily Mail

Sög­ur herma að Dav­id hafi rak­leiðis hringt í neyðarlín­una og hóf­ust þeir feðgar handa við að leita þjóf­inn uppi og freistuðu þess að hand­sama hann áður en Lög­regl­an kæmi á staðinn. Það fór hins veg­ar ekki svo og hef­ur eng­inn verið hand­tek­inn enn fyr­ir inn­brotið. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vatnsberi

Sign icon Það eru einhverjir í hópi samstarfsmanna þinna sem vilja mikið til vinna að leggja stein í götu þína. Líttu aftur á hugmyndastigið áður en þú framkvæmir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Moa Hern­gren
3
Torill Thorup
5
Stein­dór Ívars­son
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vatnsberi

Sign icon Það eru einhverjir í hópi samstarfsmanna þinna sem vilja mikið til vinna að leggja stein í götu þína. Líttu aftur á hugmyndastigið áður en þú framkvæmir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Moa Hern­gren
3
Torill Thorup
5
Stein­dór Ívars­son