Söng- og leikkonan Jennifer Lopez tilkynnti trúlofun hennar og leikarans Ben Affleck í dag, 18 árum eftir að leiðir þeirra skildu í fyrsta sinn.
Lopez birti myndband af sér á Instagram með grænan demantshring ásamt dagblaði frá deginum í dag.
Lopez er 52 ára og Affleck er 49 ára en þau byrjuðu saman í fyrra. Þau höfðu áður verið par fyrir tæpum tveimur áratugum en þau slitu trúlofun sinni árið 2004.
Brúðkaup Lopez og Affleck verður fjórða brúðkaup hennar og annað brúðkaup hans.
Lopez var áður gift leikaranum Ojani Noa, dansaranum Cris Judd og söngvaranum Marc Anthony, en þau eiga saman tvíburana Max og Emmu sem eru 14 ára.
Affleck var áður kvæntur Jennifer Garner og eiga þau saman þrjú börn á aldrinum 10 til 16 ára.