Ben Affelck og Jennifer Lopez trúlofuðu sig í annað sinn á dögunum. Leik- og söngkonan greinir frá því að bónorð leikarans hafi verið mjög rómantískt. Hún segir þau núna fá annað tækifæri en tæpir tveir áratugir eru síðan þau voru trúlofuð síðast.
Stærsti draumur Lopez varð að veruleika þegar Affleck bað hennar. „Á laugardagskvöld á uppáhaldsstaðnum mínum í heiminum (í froðubaði), fór fallega ástin mín niður á annað hnéð og bað mín,“ skrifaði Lopez í fréttabréfi til aðdáenda sinna að því fram kemur á vef People.
„Þetta kom mér algjörlega á óvart og ég horfði bara í augun hans brosandi og grátandi á sama tíma og reyndi að átta mig á því að það sem gerðist fyrir 20 árum var að endurtaka sig. Ég var bókstaflega orðlaus. Hann sagði: „Er þetta já?“ og ég sagði: „JÁ, auðvitað er þetta JÁ.“
Lopez lýsir því hvernig hún grét og tárin runnu niður andlit hennar þegar Affleck bað hennar. „Þetta var ekki fínt eða neitt þannig en þetta var það rómantískasta sem ég hefði getað ímyndað mér, bara rólegt laugardagskvöld heima.“