„Ég hef stundað kynlíf með nokkrum draugum“

Spjallþáttarstjórnandinn Joy Behar segist hafa stundað kynlíf með draugum.
Spjallþáttarstjórnandinn Joy Behar segist hafa stundað kynlíf með draugum. Ljósmynd/imdb/Dimitrios Kambouris

Sjón­varps­kon­an Joy Beh­ar, meðstjórn­andi ABC spjallþátt­ar­ins The View, upp­lýsti áhorf­end­ur sína og meðstjórn­end­ur þátt­ar­ins að hún hefði stundað kyn­líf með draug­um. Játn­ing­in kom öll­um að óvör­um, en hún kom í kjöl­far umræðu þátt­ar­ins um konu sem seg­ist vera með „kyn­ferðis­lega drauga“ á heim­ili sínu. 

„Ef þú stund­ar kyn­líf með draug, get­ur þú orðið ólétt?,“ spurði Sara Haines, einn af stjórn­end­um spjallþátt­ar­ins. 

„Ég hef stundað kyn­líf með nokkr­um draug­um og varð aldrei ólétt,“ svaraði Beh­ar, öll­um að óvör­um. Meðstjórn­end­um spjallþátt­ar­ins var brugðið við játn­ingu Beh­ar, en það er óljóst hvernig eig­in­manni henn­ar, Steve Janowitz, tek­ur í játn­ing­una. 

Á skján­um í 25 ár

Á dög­un­um fagnaði Beh­ar 80 ára af­mæli sínu. Hún skrifaði ný­lega und­ir nýj­an samn­ing við ABC og seg­ist því ætla halda áfram á skján­um næstu ár. „Ég hef eng­in áform um að hætta störf­um,“ sagði hún í spjallþætt­in­um, en hún kom fyrst fram í þátt­un­um árið 1997. 

Ekki er vitað hvernig nýi samn­ingu Beh­ar hljóm­ar, en sam­kvæmt heim­ild­um Page Six hef­ur áður komið fram að hún hafi fengið greidd­ar 7 millj­ón­ir Banda­ríkja­dala, eða rúm­an millj­arð króna á ári frá ABC. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Fiskar

Sign icon Það er sama hversu gamall þú verður, þú ert alltaf barn foreldra þinna. Reyndu sérstaklega að kynnast fólki sem er bæði heiðarlegt og gáfað.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
5
Satu Rämö
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Fiskar

Sign icon Það er sama hversu gamall þú verður, þú ert alltaf barn foreldra þinna. Reyndu sérstaklega að kynnast fólki sem er bæði heiðarlegt og gáfað.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
5
Satu Rämö