Stjörnurnar skína í Hörpu

Leikstjórinn Ruben Östlund með nokkrum leikara Triangle of Sadness og …
Leikstjórinn Ruben Östlund með nokkrum leikara Triangle of Sadness og framleiðanda. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Evr­ópsku kvik­mynda­verðlaun­in verða af­hent í Eld­borg í Hörpu í kvöld og eru gest­ir farn­ir að streyma í húsið. Vegna kulda fer mót­tak­an fram inn­an­húss og streymi hafið frá dregl­in­um á vef verðlaun­anna. 

Fimm kvik­mynd­ir eru til­nefnd­ar í flokki bestu evr­ópsku kvik­mynd­ar­inn­ar en þær eru   Alcar­rás, Close, Cor­sa­ge, Holy Spi­der og Triangle of Sand­ess. Í flokki heim­ild­ar­mynda eru það A Hou­se Made of Splin­ters, Girl Gang, Mariupol­is 2, The Balcony Movie og The March on Rome.

Til­nefnd­ir leik­stjór­ar eru Lukas Dhont, Marie Kr­eutzer, Jerzy Skolimowski, Ali Abbasi, Alice Diop og Ru­ben Östlund. Til­nefnd­ar leik­kon­ur eru Vicky Krieps, Zar Amir Ebra­himi, Léa Seydoux, Penélope Cruz og Meltem Kapt­an. Til­nefnd­ir leik­ar­ar eru Paul Mescal, Elliott Cros­set Hove, Pierfrancesco Favino og Zl­at­ko Buricc.

Í flokki hand­rits­höf­unda eru til­nefnd Carla Simón og Arnau Vil­aró, Kenn­eth Branagh, Lukas Dhont og Ang­elo Tijs­sens, Ali Abbasi og Af­shin Kamr­an Bahrami og Ru­ben Östlund. Í flokki sem nefn­ist Evr­ópsk upp­götv­un og er á veg­um alþjóðasam­taka kvik­mynda­gagn­rýn­enda, FIPRESCI, eru til­nefnd­ar mynd­ir sem eru fyrsta kvik­mynd leik­stjóra í fullri lengd og má sjá þær og fleiri á vef EFA, europe­an­filmaw­ards.eu. 

Kvik­mynd Hann­es­ar Þórs Hall­dórs­son­ar, Leyni­lögga, er til­nefnd sem besta gam­an­mynd­in. 

Ilm­ur Kristjáns­dótt­ir og Haug­leik­ur Dags­son eru kynn­ar á hátíðinni. Sýnt verður frá verðlaun­un­um í beinni út­send­ingu á RÚV og hefst út­send­ing kl. 19.15.

Hér má sjá nokkr­ar mynd­ir sem ljós­mynd­ari Morg­un­blaðsins tók af gest­um við kom­una í Hörpu. 

Hannes Þór Halldórsson með leikurum og fleirum sem komu að …
Hann­es Þór Hall­dórs­son með leik­ur­um og fleir­um sem komu að gerð Leyni­löggu.
Ingvar E. Sigurðsson og Edda Arnljótsdóttir.
Ingvar E. Sig­urðsson og Edda Arn­ljóts­dótt­ir.
Sunneva Weisshappel og Baltasar Kormákur.
Sunn­eva Weiss­happ­el og Baltas­ar Kor­mák­ur.
Leikstjórinn Ali Abbasi, annar frá hægri, með aðalleikurum og framleiðendum …
Leik­stjór­inn Ali Abbasi, ann­ar frá hægri, með aðalleik­ur­um og fram­leiðend­um Holy Spi­der.
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Bogmaður

Sign icon Teikn eru á lofti um ástarævintýri þar sem aldursmunur er mikill milli einstaklinga. Gefðu makanum gætur og sinntu þörfum hans.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
4
Satu Rämö
5
Lotta Lux­en­burg
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Bogmaður

Sign icon Teikn eru á lofti um ástarævintýri þar sem aldursmunur er mikill milli einstaklinga. Gefðu makanum gætur og sinntu þörfum hans.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
4
Satu Rämö
5
Lotta Lux­en­burg