Thunberg bregst við fregnum af Tate

Greta Thunberg og Andrew Tate stóðu í stuttri deilu á …
Greta Thunberg og Andrew Tate stóðu í stuttri deilu á Twitter í vikunni. Nú er hann sagður hafa verið handtekinn í Rúmeníu. Samsett mynd

„Þetta ger­ist þegar þú ferð ekki með pítsu­kass­ann þinn í end­ur­vinnsl­una,“ skrif­ar bar­áttu­kon­an Greta Thun­berg á Twitter nú í morg­un. Þar bregst hún vafa­laust við frétt­um af Andrew Tate, fyrr­ver­andi heims­meist­ara í spark­boxi, en hann er sagður hafa verið hand­tek­inn í Rúm­en­íu í gær. 

Lög­regl­an í Rúm­en­íu er sögð hafa hand­tekið Tate og bróður hans Trist­an í gær eft­ir að Tate birti mynd­band af sér á Twitter. Eru bræðurn­ir grunaðir um að hafa átt þátt í man­sali og nauðgun­um.

Tate og Thun­berg stóðu í stuttri deilu á Twitter í vik­unni. Merkti Tate hana í tíst og taldi upp nokkr­ar bif­reiðar í sinni eigu. Bað hann um tölvu­póst­fang henn­ar til að segja henni frá fleiri bif­reiðum sem hann ætti. Svaraði Thun­berg með því að end­ur­birta færsl­una og skrifa: „Já, endi­lega upp­lýstu mig frek­ar um þetta. Sendu mér tölvu­póst á smátyppa­orka@fáðuþér­líf.com.“

Svar fór illa í Tate, ef marka má mynd­bandið sem hann birti síðar. En mynd­bandið leiddi mögu­lega til þess að hann var hand­tek­inn, en pítsu­kassi sem sést í mynd­band­inu er sagður hafa komið lög­regl­unni á sporið og staðfesta þann grun lög­reglu að Tate væri í Rúm­en­íu.

Tate vakti at­hygli fyrr á ár­inu fyr­ir um­deild­ar yf­ir­lýs­ing­ar sín­ar á sam­fé­lags­miðlum, sem þóttu bera vott um kven­hat­ur og var hann bannaður af sam­fé­lags­miðlun­um Face­book, TikT­ok og Twitter. Tate fékk hins veg­ar að snúa aft­ur á síðar­nefnda miðil­inn eft­ir að auðkýf­ing­ur­inn Elon Musk festi kaup á hon­um.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Ljón

Sign icon Þú hefur mikinn sjálfsaga og gerir stundum of miklar kröfur til sjálfs þín. En þú ert líka svo hlýr að þú gætir brætt stærstu jökla..
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Col­leen Hoo­ver
3
Torill Thorup
4
Lotta Lux­en­burg
5
Satu Rämö
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Ljón

Sign icon Þú hefur mikinn sjálfsaga og gerir stundum of miklar kröfur til sjálfs þín. En þú ert líka svo hlýr að þú gætir brætt stærstu jökla..
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Col­leen Hoo­ver
3
Torill Thorup
4
Lotta Lux­en­burg
5
Satu Rämö