Kristján Einar ætlar í langtímameðferð

Kristján Einar Sigurbjörnsson ætlar í langtímameðferð í Krýsuvík á miðvikudag.
Kristján Einar Sigurbjörnsson ætlar í langtímameðferð í Krýsuvík á miðvikudag. Ljósmynd/Facebook

Kristján Ein­ar Sig­ur­björns­son, sem er hvað þekkt­ast­ur fyr­ir að hafa setið í fang­elsi í átta mánuði á Spáni á síðasta ári, ætl­ar að fara í lang­tímameðferð í Krýsu­vík. Þessu grein­ir Kristján Ein­ar sjálf­ur frá á In­sta­gram og seg­ir síðustu vik­ur hafa verið erfiðar. 

„Lífið hef­ur verið upp og niður eft­ir að ég kom út úr the car­sel, og í sann­leika var það orðið of mikið fyr­ir mig og ég hef tekið þá ákvörðun að fara í lang­tímameðferð á Krýsu­vik í eins marga mánuði og mér finnst ég þurfa til þess að rétta út kútn­um, þetta er stórt skref fyr­ir mig og ég vona að Jesú sé að fylgja mér í rétta átt,“ skrif­ar Kristján og seg­ist fara inn á miðviku­dag. 

Líkt og mbl.is greindi frá í byrj­un árs var Kristján Ein­ar hand­tek­inn á Húsa­vík. Var hann grunaður um ölv­unar­akst­ur en ekki um lík­ams­árás eins og áður hafði komið fram. Sér­sveit kom að hand­tök­unni, en var þó ekki kölluð sér­stak­lega til í verk­efnið. 

Kristján Ein­ar var í sam­bandi með söng­kon­unni Svölu Björg­vins­dótt­ur þegar hann var hand­tek­inn í Málaga á Spáni í mars á síðasta ári. Upp úr sam­bandi þeirra slitnaði á meðan Kristján sat inni. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Krabbi

Sign icon Það getur verið dýrkeypt að blanda sér í annarra mál að ástæðulausu. Komið er að því að horfast í augu við nokkur úrlausnarefni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
5
Moa Hern­gren
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Krabbi

Sign icon Það getur verið dýrkeypt að blanda sér í annarra mál að ástæðulausu. Komið er að því að horfast í augu við nokkur úrlausnarefni.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
5
Moa Hern­gren