Bragðaði fyrst áfengi ung að aldri

Emma Watson var ekki há í loftinu þegar hún smakkaði …
Emma Watson var ekki há í loftinu þegar hún smakkaði fyrsta áfengisdropann. AFP/Angela Weiss

Breska leik­kon­an Emma Wat­son fékk vatns­blandað vín sem barn og stund­um gaf pabbi henn­ar henni dropa af sterk­ara áfengi. Vegna þess skildi hún aldrei hrifn­ingu hinna ung­ling­anna á áfengi.

Wat­son viður­kenn­ir þetta í ný­legu viðtali við Fin­ancial Times þar sem hún ræðir nýtt gin­vörumerki sem hún hef­ur hleypt af stokk­un­um ásamt bróður sín­um, Alex Wat­son.

Wat­son lýs­ir því að henni hafi þótt furðulegt hversu aðlaðandi áfengi var í aug­um annarra ung­linga í kring­um hana og hversu for­boðið það var. Sjálf var hún vön því að fá vatns­blandað vín með há­deg­is­matn­um og því hafi þetta komið henni mjög á óvart.

Wat­son, sem er hvað þekkt­ust fyr­ir hlut­verk sitt sem Hermi­o­ne í Harry Potter-mynd­un­um, dró sig nokkuð úr sviðsljós­inu eft­ir að síðasta mynd henn­ar kom út árið 2019. Nú er hún mætt á ný í öðru hlut­verki, en fjöl­skyld­an henn­ar hef­ur verið viðloðandi vín­gerð síðan á tí­unda ára­tug síðustu ald­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vog

Sign icon Núna getur þú ekki lengur vikist undan því að gera þá hluti heima fyrir sem þú hefur skotið á frest. Nú er tíminn til að bera á borð stórar hugmyndir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vog

Sign icon Núna getur þú ekki lengur vikist undan því að gera þá hluti heima fyrir sem þú hefur skotið á frest. Nú er tíminn til að bera á borð stórar hugmyndir.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir