Leikkonan Jennifer Aniston heldur enn fast í þá trú að hún muni að lokum finna hinn eina sanna og hefur ekki gefið ástina upp á bátinn – jafnvel þótt hún hafi átt í ófáum mislukkuðum samböndum í gegnum tíðina.
Heimildamaður Us Weekly segir Aniston líða mjög vel og hafi það mjög gott ein. „Innst inni þá trúir Jen því þó að hún hitti að lokum réttu manneskjuna,“ sagði hann.
„Hún er hamingjusöm, heilbrigð og ánægð með ferilinn sinn, fjölskyldu og vini. Hún hefur gengið í gegnum margt en er þakklát fyrir velgengni sína, bæði persónulega og faglega,“ bætti heimildamaðurinn við.
Aniston hefur tvisvar gengið í það heilaga, annars vegar með leikaranum Brad Pitt og hins vegar með leikaranum Justin Theroux.
Hún kynntist Pitt árið 1994, en ástarsamband þeirra hófst ekki fyrr en 1998. Þau giftu sig í júlí árið 2000 en skildu í október 2005 vegna meints framhjáhalds Pitt með mótleikkonu sinni, Angelinu Jolie.
Eftir skilnaðinn átti Aniston í ástarsambandi með leikaranum Vince Caughn og síðar tónlistarmanninum John Mayer.
Aniston og Theroux höfðu verið vinir í langan tíma áður en neisti kviknaði á milli þeirra við tökur á kvikmyndinni Wanderlust árið 2011. Þau gengu í það heilaga í ágúst 2015 en leiðir þeirra skildi þremur árum síðar.