Skrópaði og missti meydóminn

Maya Hawke er dóttir fyrrverandi leikarahjónanna Uma Thurman og Ethan …
Maya Hawke er dóttir fyrrverandi leikarahjónanna Uma Thurman og Ethan Hawke. Samsett mynd

Leik­kon­an Maya Hawke var gest­ur í spjallþætti An­dys Cohens, Watch What Happ­ens Live, þar sem hún svaraði nokkr­um áhuga­verðum hraðasp­urn­ing­um um unglings­ár­in. 

Hawke spilaði eina um­ferð af leikn­um High School Me, ásamt leik­ar­an­um Bry­an Cr­an­ston, en leik­kon­an hneykslaði Cohen og Cr­an­ston þegar hún viður­kenndi eitt mesta kland­ur sem hún kom sér í á unglings­ár­un­um. 

Leik­kon­an viður­kenndi að hafa lent í heil­miklu veseni þegar hún skrópaði í sál­fræðitíma og fór og missti mey­dóm­inn í staðinn. Hawke sagði sömu­leiðis að faðir henn­ar, leik­ar­inn Et­h­an Hawke hefði verið mjög ósátt­ur við dótt­ur sína þegar hann frétti að hún hefði skrópað í tím­ann. 

Hawke er dótt­ir fyrr­ver­andi leik­ara­hjón­anna Et­h­an Hawke og Uma Thurm­an, en þau voru gift á ár­un­um 1998–2005. Hawke hef­ur verið að gera það gott í leik­list­inni enda á hún ekki langt að sækja hæfi­leik­ana. Hún vakti mikla at­hygli fyr­ir hlut­verk sitt sem Robin Buckley í hinni vin­sælu þáttaröð Stran­ger Things

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er líklegt að þú daðrir við einhvern þér eldri og reyndari í dag. Líklega er eitthvað sem þig langar sjúklega mikið að eignast.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
5
Satu Rämö
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Það er líklegt að þú daðrir við einhvern þér eldri og reyndari í dag. Líklega er eitthvað sem þig langar sjúklega mikið að eignast.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
5
Satu Rämö