Costner vill ekki fjármagna fegrunaraðgerðir fyrrverandi

Kevin Costner heldur því fram að kröfur Christine Baumgartner um …
Kevin Costner heldur því fram að kröfur Christine Baumgartner um hærri framfærslueyri séu ekki gerðar með hag barna þeirra í huga. Samsett mynd

Leik­ar­inn Kevin Costner held­ur því fram að fyrr­ver­andi kon­an hans, Christ­ine Baum­gar­tner, fari fram á auk­inn fram­færslu­eyri til að fjár­magna fegr­un­araðgerðir sín­ar. Fyrr­ver­andi hjón­in eiga nú í hat­römm­um skilnaðardeil­um eft­ir að Baum­gar­tner fór fram á skilnað í maí síðastliðnum. Hef­ur Baum­gar­tner farið fram á hærri fram­færslu­eyri en upp­runa­lega var samið um, sem er að henn­ar sögn til þess að tryggja börn­um þeirra ör­uggt heim­ili.

Page Six grein­ir frá því að sam­kvæmt skjöl­um sem end­ur­skoðandi Costners hafi lagt fram að Baum­gar­tner hafi eytt yfir 100 þúsund banda­ríkja­döl­um í fegr­un­araðgerðir, ásamt mörg þúsund doll­ur­um í versl­un­ar­ferðir, út­tekt­ir úr hraðbanka, lög­fræðikostnað og ann­an kostnað sem hef­ur ekk­ert með börn þeirra að gera. Tel­ur Costner og lög­fræðiteymi hans því að það sé raun­veru­leg ástæða þess að Baum­gar­tner fari fram á hærri fram­færslu­eyri.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Meyja

Sign icon Það getur verið erfitt að útskýra málin fyrir öðrum þegar þeir eru ekki inni í fræðunum. Settu mörk sem ekki þarfnast nánari umræðu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Moa Hern­gren
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Meyja

Sign icon Það getur verið erfitt að útskýra málin fyrir öðrum þegar þeir eru ekki inni í fræðunum. Settu mörk sem ekki þarfnast nánari umræðu.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Moa Hern­gren