Laufey ræddi við einn þekktasta blaðamann heims

Laufey Lín og Nardwuar ræddu um margt skemmtilegt.
Laufey Lín og Nardwuar ræddu um margt skemmtilegt. Samsett mynd

Tón­list­ar­kon­an Lauf­ey Lín Jóns­dótt­ir held­ur áfram að heilla fólk um heim all­an með blæ­brigðaríkri rödd sinni og fyrstu plötu, Bewitched. Hún er um þess­ar mund­ir á tón­leika­ferðalagi er­lend­is en gaf sér tíma til þess að ræða við Josh Ru­skin, bet­ur þekkt­ur sem Nardwu­ar eða Nardwu­ar the Hum­an Serviette. Sá er blaðamaður og þekkt­ur fyr­ir kunn­áttu sína og um­fangs­mikl­ar rann­sókn­ir á tón­list­ar­sögu heims­ins. 

Lauf­ey kíkti í heim­sókn til Nardwu­ar í Vancou­ver í Kan­ada og ræddu þau meðal ann­ars um tónlist, djass­sög­una og líf Lauf­eyj­ar á Íslandi. Nardwu­ar birti mynd­band af viðtal­inu á vin­sælli Youtu­be-síðu hans í gær­dag og hef­ur það nú þegar hlotið yfir 94 þúsund áhorf, en Nardwu­ar er vin­sæll á Youtu­be og með rúm­lega þrjár millj­ón­ir fylgj­enda á síðunni. 

Lík­leg á Grammy

Það eru spenn­andi tím­ar framund­an hjá tón­list­ar­kon­unni, en hún er meðal þeirra átta sem helst þykja koma til greina í nýliðaverðlaun Grammy.

Plata henn­ar, Bewitched, sem út kom í liðnum mánuði þykir einnig eiga mögu­leika sem plata árs­ins hjá Variety, sem er helsta fag­rit banda­rísks skemmt­anaiðnar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Ljón

Sign icon Þér finnast öll spjót standa á þér þannig að þú náir ekki andanum. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Ljón

Sign icon Þér finnast öll spjót standa á þér þannig að þú náir ekki andanum. Vandamálin geta vel verið fyrir hendi, þótt enginn sjá þau nema þú.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup