Nylon trónir á toppnum

Þær Steinunn Camilla, Alma, Klara og Emelía Björg í Nylon …
Þær Steinunn Camilla, Alma, Klara og Emelía Björg í Nylon hafa engu gleymt. Ljósmynd/

Stúlkna­sveit­in Nylon sendi frá sér lagið Einu sinni enn í til­efni af 20 ára af­mæli sveit­ar­inn­ar sem gerði garðinn fræg­an upp úr alda­mót­un­um. Lagið hef­ur notið mik­illa vin­sælda á út­varps­stöðvum og streym­isveit­um og trón­ir á toppi Bylgju­list­ans aðra vik­una í röð.

Nylon, sem er skipuð þeim Ölmu Guðmunds­dótt­ur, Stein­unni Camillu Sig­urðardótt­ur, Klöru Ósk Elías­dótt­ur og Em­il­íu Sig­urðardótt­ur, stigu á svið í fyrsta sinn í 17 ár á Tóna­flóði Rás­ar 2 á Menn­ing­arnótt hinn 19. ág­úst síðastliðinn og frum­fluttu nýj­asta smell sinn við mik­inn fögnuð viðstaddra.

Stúlkna­sveit­in er í góðum fé­lags­skap á Bylgju­lista vik­unn­ar en í öðru og þriðja sæti list­ans sitja kántrí-popp­stjörn­urn­ar Tayl­or Swift og Miley Cyr­us með slag­ara sína, Cru­el Sum­mer og Used To Be Young.



 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vog

Sign icon Taktu umhverfi þitt til gagngerrar endurskoðunar og drífðu svo í þeim breytingum sem þér finnast nauðsynlegar. Hláturinn lengir lífið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Vog

Sign icon Taktu umhverfi þitt til gagngerrar endurskoðunar og drífðu svo í þeim breytingum sem þér finnast nauðsynlegar. Hláturinn lengir lífið.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup