Sjáðu Rúrik Gíslason í gegnum árin

Sjáðu fyrrverandi knattspyrnumanninn Rúrik Gíslason í gegnum ferilinn.
Sjáðu fyrrverandi knattspyrnumanninn Rúrik Gíslason í gegnum ferilinn. Samsett mynd

Fyrr­ver­andi knatt­spyrnu­mann­in­um Rúrik Gísla­syni er margt til list­anna lagt, en á und­an­förn­um vik­um hef­ur hann slegið ræki­lega í gegn í sjón­varpsþátt­un­um IceGuys sem fjalla um sam­nefnt stráka­band.

Rúrik á glæst­an fót­bolta­fer­il að baki og hef­ur spilað í Englandi, Dan­mörku og Þýskalandi. Hann skaust eft­ir­minni­lega á stjörnu­him­in­inn sum­arið 2018 þegar hann fór á heims­meist­ara­mótið í knatt­spyrnu með ís­lenska landsliðinu. Eft­ir að Rúrik kom inn á í síðari hálfleik á móti Arg­entínu varð allt vit­laust og fóru fylgj­end­ur hans á In­sta­gram úr því að vera 30 þúsund yfir í 358 þúsund á ör­skömm­um tíma.

Síðan þá hef­ur bolt­inn sann­ar­lega rúllað hjá Rúrik, en í dag er hann fyr­ir­sæta, áhrifa­vald­ur, dans­ari, söngv­ari og leik­ari. Fer­ill Rúriks hófst þó á fót­bolta­vell­in­um í Kópa­vogi þegar hann var 17 ára gam­all.

Fór út í at­vinnu­mennsku 17 ára

Fer­ill Rúriks hófst hjá HK í Kópa­vogi og spilaði hann með liðinu til árs­ins 2005, en þá fór hann út fyr­ir land­stein­ana og spilaði með Charlt­on At­hletic í Lund­ún­um aðeins 17 ára gam­all. 

Rúrik hóf ferilinn hjá HK, en hér er hann árið …
Rúrik hóf fer­il­inn hjá HK, en hér er hann árið 2005 þá 17 ára gam­all. mbl.is
Rúrik spilaði með knattspyrnuliðinu Charlton Athletic í suðaustur Lundúnum. Hér …
Rúrik spilaði með knatt­spyrnuliðinu Charlt­on At­hletic í suðaust­ur Lund­ún­um. Hér er mynd af hon­um frá 2007. Heimasíða Charlt­on

Frá Lund­ún­um til Dan­merk­ur

Frá Lund­ún­um lá leið Rúriks til Dan­merk­ur árið 2007 þar sem hann spilaði með þrem­ur mis­mun­andi liðum á ár­un­um 2007 til 2015. 

Fyrst fór hann til Vi­borg á Jótlandi, þaðan til OB í Óðinsvé­um og að lok­um til F.C. Kaup­manna­hafn­ar. 

Rúrik á æfingu með Odensen Boldklubb, oftast kallað OB, í …
Rúrik á æf­ingu með Od­en­sen Bold­klubb, oft­ast kallað OB, í Óðinsvé­um árið 2009. Ljós­mynd/​ob.dk
Rúrik í leik F.C. Kaupmannahafnar á móti Real Madrid árið …
Rúrik í leik F.C. Kaup­manna­hafn­ar á móti Real Madrid árið 2013. Með hon­um á mynd­inni er Sami Khedira. GER­ARD JU­LIEN

Kláraði fer­il­inn í Þýskalandi

Árið 2015 fór Rúrik til Þýska­lands þar sem hann spilaði með SV Sand­hausen til árs­ins 2020 en þá tók hann ákvörðun að leggja fót­bolta­skóna á hill­una. 

Á ferl­in­um spilaði Rúrik 53 leiki með ís­lenska A-landsliðinu og skoraði í þeim þrjú mörk.

Ljós­mynd/​Fcn.de
Rúrik Gíslason á heimsmeistaramótinu árið 2018.
Rúrik Gísla­son á heims­meist­ara­mót­inu árið 2018. mbl.is/​Skapti Hall­gríms­son
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Krabbi

Sign icon Nýttu þær auðlindir sem þú hefur aðgang að til að bæta umhverfi þitt, bæði í vinnunni og á heimilinu. Reyndu að forðast mikið álag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Moa Hern­gren
3
Torill Thorup
4
Stein­dór Ívars­son
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Krabbi

Sign icon Nýttu þær auðlindir sem þú hefur aðgang að til að bæta umhverfi þitt, bæði í vinnunni og á heimilinu. Reyndu að forðast mikið álag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Moa Hern­gren
3
Torill Thorup
4
Stein­dór Ívars­son