Litla systir ofurfyrirsætunnar Kate Moss, Lottie Moss, segist þéna 30 þúsund sterlingspund á mánuði á OnlyFans, eða sem nemur rúmum 5,2 milljónum króna á gengi dagsins í dag.
Á miðlinum getur fólk sent myndir og myndskeið sem það framleiðir á rásum sínum og hafa margir nýtt miðilinn til að selja klámfengið efni.
Lottie greindi frá þessu í nýlegu viðtali þar sem hún opnaði sig einnig aftur um samband sitt við stóru systur sína, en hún sagði fyrst frá erfiðu systrasambandi þeirra í ágúst 2023 og vakti það mikla athygli í fjölmiðlum.