Eva fagnar tíu árum edrú

Eva Mattadóttir er þáttastjórnandi hlaðvarpsins Normið ásamt Sylvíu Breim Friðjónsdóttur.
Eva Mattadóttir er þáttastjórnandi hlaðvarpsins Normið ásamt Sylvíu Breim Friðjónsdóttur.

Eva Matta­dótt­ir, markþjálfi, barna­bóka­höf­und­ur og hlaðvarps­stjórn­andi, er búin að vera án áfeng­is í tíu ár. Hún skrifaði ein­læga færslu um áfang­ann á In­sta­gram.

„Í dag hef ég verið edrú í 10 ár. Senni­lega það nett­asta sem ég hef af­rekað. Ed­rú­mennska er dag­legt djobb for life, vissu­lega. En alltaf þess virði. Það er ekk­ert gam­an að vera í slag við sjálf­an sig og til­ver­una, friður­inn er ein­hvern­veg­in svo miklu meira djúsí dæmi. Ég sé það núna.

Töst fyr­ir 10 árum, en eig­in­lega bara deg­in­um í dag. Því ég tek víst bara einn dag í einu. Annað er yfirþyrm­andi fyr­ir alka­haus­inn, og flest okk­ar líka held ég sveimérþá.

Ég veit að mörg eru með sína eig­in skoðun á alkó­hól­isma og fíkni­sjúk­dóm­um, en ég vildi óska þess að fleiri vissu raun­veru­lega um hvað málið snýst. Ég gaf mér það í 10 ára af­mæl­is­gjöf opna vel á þessa umræðu í Norm­inu okk­ar allra – og ég hlakka til að setja þann þátt í loftið 1. des,“ skrifaði Eva í færslu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Fiskar

Sign icon Hrósaðu þeim sem eiga það skilið, ekki síst ef það ert þú sjálfur sem átt í hlut. Reyndu að koma skikki á hlutina og skila því starfi sem þér er ætlað.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Fiskar

Sign icon Hrósaðu þeim sem eiga það skilið, ekki síst ef það ert þú sjálfur sem átt í hlut. Reyndu að koma skikki á hlutina og skila því starfi sem þér er ætlað.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Stein­dór Ívars­son
3
Moa Hern­gren
4
Torill Thorup