Hafdís sendi Kleina hjartnæma afmæliskveðju

Hafdís Björg Kristjánsdóttir og Kristján Einar Sigurbjörnsson kynntust fyrst í …
Hafdís Björg Kristjánsdóttir og Kristján Einar Sigurbjörnsson kynntust fyrst í World Class fyrir nokkrum árum. mbl.is/Arnþór Birkisson

Haf­dís Björg Kristjáns­dótt­ir einkaþjálf­ari fer ekki leynt með ást sína til Kristjáns Ein­ars Sig­ur­björns­son­ar, bet­ur þekkt­ur sem Kleini, í hjart­næmri af­mæliskveðju sem hún birti á In­sta­gram-reikn­ingi sín­um um helg­ina. 

Kristján varð 26 ára þann 20. janú­ar síðastliðinn, en í til­efni dags­ins birti Haf­dís fal­lega færslu:

„Þá á ynd­is­legi, fal­legi og skemmti­legi kall­inn minn af­mæli. Er svo þakk­lát fyr­ir að eitt lítið knús varð til þess að þú varðst minn. Að fylgj­ast með þér tækla allt sem þú tek­ur þér fyr­ir hend­ur er virki­lega hvetj­andi og ger­ir mig svo stolta að vera kon­an þín!

Við strák­arn­ir erum svo hepp­in að eiga þig að! Þol­in­mæðin, ást­in og ör­yggið sem þú hef­ur gefið mér og strák­un­um er ekki sjálf­gefið og mun­um við hik­laust halda áfram að halda þér á tán­um og reyna á þessa enda­lausu þol­in­mæði sem að eng­inn skil­ur hvaðan kem­ur. Því þú ert nú ekki þekkt­ur fyr­ir mikla þol­in­mæði en sama hvað við reyn­um á þá hef­ur þú ekki hagg­ast þegar að það kem­ur að okk­ur.

Ég elska þig enda­laust og hlakka til að eyða æv­inni þér við hlið og skapa fal­leg­ar minn­ing­ar með þér og börn­un­um okk­ar.“

View this post on In­sta­gram

A post shared by Hafdís Björg (@hafd­is­bk)

Fóru bæði í sam­fé­lags­miðlapásu

Í mars 2023 greindi Smart­land frá því að Kristján og Haf­dís væru nýtt par og í ág­úst að þau væru trú­lofuð. Þau voru áber­andi á sam­fé­lags­miðlum fyrstu mánuði sam­bands­ins eða þar til Kristján til­kynnti að hann ætlaði í sam­fé­lags­miðlapásu til að ná mark­miðum sín­um. 

Stuttu síðar fetaði Haf­dís í fót­spor Kristjáns og tók sér líka sam­fé­lags­miðlapásu en þó ekki jafn lengi og Kristján sem stefndi á að vera í burtu frá öll­um miðlum í sex til tólf mánuði. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Bogmaður

Sign icon Teikn eru á lofti um ástarævintýri þar sem aldursmunur er mikill milli einstaklinga. Gefðu makanum gætur og sinntu þörfum hans.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
5
Satu Rämö
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Bogmaður

Sign icon Teikn eru á lofti um ástarævintýri þar sem aldursmunur er mikill milli einstaklinga. Gefðu makanum gætur og sinntu þörfum hans.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
5
Satu Rämö