Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra óskaði Laufeyju Lín Jónsdóttur tónlistarkonu til hamingju með Grammy-verðlaunin á samfélagsmiðlinum X.
„Til hamingju með einstakan árangur!” skrifaði Katrín.
Til hamingju @laufey með einstakan árangur!https://t.co/7DRFGyQLOj
— Katrín Jakobsdóttir (@katrinjak) February 4, 2024
Laufey hlaut verðlaunin fyrir plötu sína Bewitched í flokki hefðbundinna söngpoppplatna (e. traditional pop vocal album).