Beggi Ólafs fetar í fótspor Kleina og Hafdísar

Að undanförnu hafa sífellt fleiri áhrifavaldar ákveðið að taka sér …
Að undanförnu hafa sífellt fleiri áhrifavaldar ákveðið að taka sér pásu frá samfélagsmiðlum. Samsett mynd

Berg­sveinn Ólafs­son áhrifa­vald­ur og doktorsnemi í sál­fræði, oft kallaður Beggi Ólafs, til­kynnti fylgj­end­um sín­um á In­sta­gram að hann væri far­inn í 100 daga sam­fé­lags­miðlapásu. 

Berg­sveinn er bú­sett­ur í Banda­ríkj­un­um þar sem hann stund­ar doktors­nám í sál­fræði ásamt því að þróa eigið fyr­ir­tæki. Í In­sta­gram-færslu sinni seg­ist hann ætla að taka sér sam­fé­lags­miðlapásu til þess að ein­beita sér að doktors­rit­gerðinni, en hann kall­ar pás­una „Proj­ect100“.

„Þetta verður erfitt“

„Hæ all­ir. Ég ætla að taka mér pásu frá sam­fé­lags­miðlum næstu 100 daga. Hvers vegna? Það er kom­inn tími til að sökkva mér ofan í doktors­rann­sókn­ina mína. Ég er að tala um fulla dýfu, eng­ar trufl­an­ir. Kom­andi önn er þétt­skipuð og ég stefni á að út­skrif­ast vorið 2025 (Dr. Beggi í bíg­erð). Til þess að svo megi verða þarf ég að ein­beita mér að því að kafa djúpt í rann­sókn­ir og þekk­ing­ar­sköp­un.

En þetta snýst ekki bara um vinn­una. Ég ætla líka að leyfa mér að vera mann­leg­ur, til að búa til minn­ing­ar með fólk­inu sem mér þykir vænt um. Ég tel að það að rækta fé­lags­leg tengsl sé eitt það mik­il­væg­asta sem við ger­um í líf­inu. Kjarni #Proj­ect100 er að vaxa ekki bara fag­lega, held­ur líka per­sónu­lega og fé­lags­lega,“ skrif­ar Berg­sveinn í færsl­unni. 

„Nú ætla ég ekki að ljúga – þetta verður erfitt. Að deila ferðalagi mínu og inn­sýn með ykk­ur öll­um er eitt­hvað sem ég elska og það sem ég hef verið að gera stöðugt síðan 2018. En stund­um þarf maður að stíga aft­ur til að stökkva fram, ekki satt?

Ég er ekki að fara að ei­lífu, ég kem aft­ur í maí og get ekki beðið eft­ir að deila öll­um sög­un­um, bylt­ing­un­um, þekk­ing­unni, visk­unni og kannski nokkr­um óvænt­um hlut­um frá djúpri dýf­ingu minni,“ bæt­ir hann við og hvet­ur áhuga­sama um að taka þátt í verk­efn­inu með hon­um.

Sam­fé­lags­miðlapás­ur sí­fellt al­geng­ari

Að und­an­förnu hef­ur orðið sí­fellt al­geng­ara að áhrifa­vald­ar taki sér pásu frá sam­fé­lags­miðlum til þess að ein­beita sér að mark­miðum sín­um. Það vakti mikla at­hygli þegar áhrifa­vald­ur­inn Kristján Ein­ar Sig­ur­björns­son, bet­ur þekkt­ur sem Kleini, ákvað að taka sér 6-12 mánaða pásu frá sam­fé­lags­miðlum sum­arið 2023. Stuttu síðar fetaði unn­usta hans, þjálf­ar­inn Haf­dís Björk Kristjáns­dótt­ir, í fót­spor hans. 

View this post on In­sta­gram

A post shared by Hafdís Björg (@hafd­is­bk)

Í janú­ar greindi áhrifa­vald­ur­inn Nökkvi Fjal­ar Orra­son frá því að hann ætlaði að taka sér 90 daga sam­fé­lags­miðlapásu til þess að byggja upp fyr­ir­tækið sitt. Þá sagði tón­list­ar­kon­an Dag­björt Rúriks­dótt­ir einnig frá því að hún ætlaði í sam­fé­lags­miðlapásu í janú­ar. 

View this post on In­sta­gram

A post shared by Nikki Orra­son (@nokkvifjal­ar)

Tón­list­armaður­inn Emm­sjé Gauti ákvað í des­em­ber 2023 að hætta að fylgja öðru fólki á In­sta­gram til þess að eyða minni tíma á sam­fé­lags­miðlum. „Minni tími á sam­fé­lags­miðlum. Meiri tími í aðra hluti. Un­followaði alla. Ekk­ert per­sónu­legt,“ skrifaði hann til að út­skýra af hverju hann væri ekki að fylgja nein­um leng­ur. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Ljón

Sign icon Þú hugsar kannski enn um þegar brotið var á þér í gamla daga, en þú hefur val hvernig þú bregst við. Meiri tilkostnaður þýðir ekki endilega betri árangur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
4
Torill Thorup
5
Satu Rämö
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Ljón

Sign icon Þú hugsar kannski enn um þegar brotið var á þér í gamla daga, en þú hefur val hvernig þú bregst við. Meiri tilkostnaður þýðir ekki endilega betri árangur.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Birgitta H. Hall­dórs­dótt­ir
3
Col­leen Hoo­ver
4
Torill Thorup
5
Satu Rämö