Stórleikkonan Emily Blunt vakti sérstaka athygli á rauða dregli Bafta-kvikmyndaverðlaunanna sem veitt voru við hátíðlega athöfn í Lundúnum á sunnudag.
Leikkonan, sem var tilnefnd fyrir hlutverk sitt í Oppenheimer, ljómaði í glæsilegum kjól frá Elie Saab. Margir pældu þó aðeins í því af hverju eiginmaður Blunt væri ekki við hlið hennar á þessu stóra kvöldi.
Blunt, sem er vön að sækja slíka viðburði ásamt eiginmanni sínum, leikaranum og leikstjóranum John Krasinski, leiddi foreldra sína, Joönnu og Oliver Blunt, niður rauða dregilinn í þetta sinn.
Leikarahjónin, sem hafa verið gift frá árinu 2010, vöktu mikla athygli í upphafi ársins er þau mættu á Golden Globe-verðlaunahátíðina.
Saklaust myndskeið sem sýndi Krasinski hvísla að eiginkonu sinni á rauða dreglinum fór eins og eldur í sinu um netheima og voru allir á því að Blunt og Krasinski, eða Krunt eins og hjónin kalla sig, væru að skilja.
Margir töldu Krasinski hafa sagt: „I can't wait to divorce,“ eða „ég get ekki beðið eftir að skilja,“ en leikarahjónin hafa bæði sagt það vera uppspuna.
Oppenheimer kom, sá og sigraði á bresku verðlaunahátíðinni. Blunt laut þó í lægra haldi fyrir Da’Vine Joy Randolph sem sigraði fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni The Holdovers.
@cbs Date night? #EmilyBlunt #JohnKrasinski #GoldenGlobes ♬ original sound - CBS