Greta Salóme er í spjalli í Dagmálum í dag. Þar talar hún um eitt erfiðasta augnablik sem hún og fjölskylda hennar hafa upplifað þegar faðir hennar veiktist skyndilega á ferðalagi frá Grænlandi fyrir u.þ.b. tveimur árum síðan.
„Þetta er svo mikið áfall sérstaklega þegar þetta gerist svona snöggt og við vissum ekkert hvað væri í gangi. Við flugum auðvitað bara öll út og okkur var sagt að þetta liti ekki vel út og við vissum ekki hvað beið okkar.“
Greta var við hlið föður síns á gjörgæslunni en bæði móðir hennar og systir höfðu smitast af kórónuveirunni á leiðinni til hans og því var hún ein við hlið hans á gjörgæslunni þegar hann vaknaði.
„Það fyrsta sem pabbi segir þegar hann vaknar er Skotta, hann kallar mig alltaf Skottu. Hann vissi það, hann var búin að heyra í mér, að ég væri þarna hjá honum. Hann lofar mér því þarna á gjörgæslunni úti í Köben að hann ætlar að labba með mér niður kirkjugólfið, hvernig sem hann muni fara að því.“
Greta segir að þessi lífsreynsla og umhverfið þarna á gjörgæslunni hafi opnað augu hennar og breytt henni, hvernig hún hugsaði um framtíðina og lífið. Breytti öllu.
„Þarna sá ég fólk sem lá fólk inni á sömu deild og pabbi, var eitt og hafði engan hjá sér. Á stofunni við hliðina á pabba inni á gjörgæslunni var verið að slökkva á öndunarvél og ég heyrði fólk bara öskra á mömmu sína. Þetta situr svo rosalega í mér og þetta breytti öllu hvernig maður hugsar um hlutina.“
Brot úr viðtalinu má sjá í spilaranum hér að ofan. Dagmál eru í heild sinni aðgengileg fyrir áskrifendur Morgunblaðsins en einnig er hægt að kaupa vikupassa Dagmála.