Sjónvarpsstjarnan Jonathan Van Ness, uppáhald margra aðdáenda Queer Eye, er sagður ráða lítt við skap sitt og bregðast mjög harkalega við minnsta mótlæti á tökusetti sjónvarpsþáttanna. Queer Eye hafa verið sýndir við miklar vinsældir frá árinu 2018.
Samskiptamál, einelti og áreitni á bak við tjöldin hafa verið stórt vandamál í þó nokkurn tíma og er Van Ness sagður spila stærstan þátt í því. Cheyenne Roundtree, blaðamaður bandaríska tímaritsins Rolling Stone, afhjúpaði sannleikann í grein sem birtist í gærdag.
Andað hefur köldu á milli Van Ness og fyrrverandi Queer Eye-stjörnunnar Bobby Berk, en sá sagði sig frá þáttunum í nóvember á síðasta ári. Fréttirnar komu aðdáendum þáttanna verulega á óvart.
Van Ness, 36 ára, er víst ekki jafn viðkunnanlegur, jákvæður og góður eins og sá sem birtist áhorfendum á sjónvarpsskjánum. Rolling Stone hefur eftir ónafngreindum heimildarmanni að Van Ness eigi við margs konar hegðunarvandamál að stríða og sé sagður vera „skrímsli í mannsmynd“ og „algjör martröð.“
Annar heimildarmaður sagði lífið á tökusetti eins og eina stóra lygasögu. „Þeir eru ekki vinir, enginn þeirra. Þetta er falskt og allt samkvæmt bókinni.“
Nýlega var tilkynnt að Jeremiah Brent muni leysa Berk af hólmi í nýrri þáttaröð Queer Eye. Ásamt Van Ness munu Karamo Brown, Antoni Borowski og Íslandsvinurinn Tan France allir snúa aftur.