Ástralski knattspyrnumaðurinn Josh Cavallo trúlofaði sig á dögunum. Sá heppni heitir Leigton Morrell og er rafvirki. Parið greindi frá trúlofuninni á Instagram á miðvikudag. Cavallo, miðjumaður ástralska knattspyrnufélagsins Adelaide United, bað síns heittelskaða á heimavelli liðsins, Cooper Stadium.
„Byrja árið með unnusta mínum. Hr. og Hr. von bráðar,“ skrifaði Cavallo við myndaseríuna. Knattspyrnumaðurinn þakkaði einnig deildarfélaginu fyrir alla aðstoðina og ómetanlegan stuðning síðastliðin ár.
Heillaóskum hefur rignt yfir parið eftir að það tilkynnti um trúlofunina.
Cavallo kom út úr skápnum í nóvember 2021. Hann deildi áhrifaríku myndbandi sem birtist á Instagram og á Twitter-síðu ástralska deildarfélagsins.
„Ég er samkynhneigður knattspyrnumaður. Það hefur verið verðugt verkefni að komast á þann stað sem ég er í dag en ég gæti ekki verið ánægðari með þá ákvörðun mína að opinbera kynhneigð mína.
Ég er búinn að vera berjast við sjálfan mig í sex ár um að leysa frá skjóðunni og ég er virkilega ánægður og stoltur af sjálfum mér að hafa látið verða af þessu. Ég hef alltaf skammast mín fyrir það hver ég er.
Ég lifði í blekkingu og taldi að ég gæti aldrei gert það sem ég elska, sem er að spila fótbolta, og vera opinberlega samkynhneigður á sama tíma. Það var einhvern veginn aldrei inn í myndinni að þetta tvennt færi saman,“ sagði Cavallo meðal annars í yfirlýsingu sinni.