Bresku raunveruleikaþættirnir Love Island hafa notið gríðarlegra vinsælda um allan heim frá því þeir komu fyrst út árið 2015. Nú hafa tíu þáttaraðir verið gefnar út og yfir 250 þátttakendur tekið þátt í sjónvarpsþáttunum í von um að finna ástina.
Margir hafa öðlast þó nokkra frægð á samfélagsmiðlum eftir þátttöku í Love Island og einhverjir hafa meira að segja dottið í lukkupottinn og fundið ástina og öðlast frægð í þáttunum!
8 vinsælustu Love Island-stjörnurnar á Instagram:
Molly-Mae Hague – 7,9 milljónir fylgjenda
Molly-Mae Hague er langvinsælust á Instagram. Hún tók þátt í fimmtu þáttaröð Love Island og fann þar ástina.
Skjáskot/Instagram
Tommy Fury – 5,4 milljónir fylgjenda
Næstvinsælastur er Tommy Fury, en hann er unnusti Molly-Mae Hague og eiga þau saman dótturina Bambi.
Skjáskot/Instagram
Ekin-Su Cülcüloğlu – 3,8 milljónir fylgjenda
Ekin-Su Cülcüloğlu deilir þriðja sætinu með Mauru Higgins, en hún tók þátt í áttundu þáttaröð Love Island.
Skjáskot/Instagram
Maura Higgins – 3,8 milljónir fylgjenda
Maura Higgins hefur notið mikilla vinsælda á Instagram, en hún er einnig með 3,8 milljónir fylgjenda. Hún tók þátt í fimmtu þáttaröð Love Island.
Skjáskot/Instagram
Dani Dyer – 3,7 milljónir fylgjenda
Því næst kemur Dani Dyer, en hún var þátttakandi í fjórðu þáttaröð Love Island.
Skjáskot/Instagram
Olivia Bowen – 3 milljónir fylgjenda
Olivia Bowen tók þátt í annarri þáttaröð Love Island.
Skjáskot/Instagram
Kem Cetinay – 2,9 milljónir fylgjenda
Kem Cetinay tók þátt í þriðju þáttaröð Love Island og er með 2,9 milljónir fylgjenda.
Skjáskot/Instagram
Amber Gill – 2,5 milljónir fylgjenda
Amber Gill tók þátt í fimmtu þáttaröð Love Island og er í áttunda sæti vinsældarlistans.
Skjáskot/Instagram