Vivienne Jolie, yngsta dóttir fyrrverandi leikarahjónanna Angelinu Jolie og Brad Pitt, notast ekki lengur við eftirnafnið Pitt.
Vivienne, sem er 15 ára gömul, er meðframleiðandi að Broadway-sýningunni The Outsiders ásamt móður sinni og skráð sem Vivienne Jolie, ekki Jolie-Pitt, í leikskrá verksins. Óljóst er hvort hún hafi formlega breytt nafni sínu.
Með þessu fetar hún í fótspor eldri systkina sinna, Maddox Chivan og Zahöru Marley, en bæði eru þau hætt að kenna sig við föður sinn, Hollywood-leikarann Brad Pitt.
Pax, Shiloh og Knox bera enn eftirnafn föður síns.
Angelina Jolie og Brad Pitt voru saman í 14 ár, gift í tvö, og eiga sex börn. Síðan þau skildu árið 2016 hefur Pitt hægt og bítandi misst samband við börnin sem hann á með Jolie en leikkonan hefur forræði.