Friðrik Danakonungur og Mary drottning þurfa að fresta opinberri heimsókn til Færeyja í næstu viku. Ástæðan eru verkföll í Færeyjum sem staðið hafa yfir síðan í maí.
Greint er frá ákvörðuninni á vef dönsku konunghallarinnar en þar segir að konungshjónin hafi fullan skilning á ákvörðun Aksel V. Johannesen, lögmanns Færeyja. Þau hlakka jafnframt til að heimsækja Færeyjar seinna.
Konungshjónin áttu að heimsækja bæði Færeyjar og Grænland í sumar. Átti lögmaður Færeyja, Aksel V. Johannesen, að taka á móti hjónunum og verja með þeim þremur dögum. Áttu þau að fara víða um færeysku eyjarnar og kynnast mat og náttúru eyjanna auk þess að heilsa upp á fólk á öllum aldri.