Stjórn Howard-háskóla hefur ákveðið að svipta tónlistarmanninn Sean „Diddy“ Combs heiðursgráðu sinni. Ákvörðunin kemur í kjölfar myndskeiðs sem CNN fréttastofan birti þar sem Diddy gengur í skrokk á fyrrverandi kærustu sinni Cassie Ventura.
Skólinn er einn virtasti háskóli Bandaríkjanna og er sögufrægur skóli innan svartrar menningar í Bandaríkjunum, en flestir nemendur skólans eru dökkir á hörund.
„Hegðun eins og sást í myndskeiðinu fer svo gegn grundvallargildum Howard að hann [Diddy] er ekki talinn verðugur þess að halda æðsta heiðri stofnunarinnar, segir í yfirlýsingu skólans vegna málsins.
Myndskeið: Diddy gekk í skrokk á Ventura (mbl.is)
Diddy baðst afsökunar á gjörðum sínum í myndskeiði sem hann birti á Instagram reikningi sínum.
Hann hefur setið undir þungum ásökunum síðustu misseri. Hann hefur verið kærður átta sinnum á sex mánuðum fyrir líkamsárásir, kynferðisofbeldi og mansal.
Í mars var gerð vopnuð húsleit á nokkrum heimilum í eigu tónlistarmannsins í tengslum við rannsókn lögreglu á mansals og kynferðisbrotamáli.
Vopnuð húsleit á heimilum Diddy (mbl.is)