Leikkonan og grínistinn Birna Rún Eiríksdóttir hefur vakið mikla lukku á samfélagsmiðlinum TikTok að undanförnu þar sem hún tekur á málefnum líðandi stunda á spaugilegum nótum í bráðfyndnum sketsum.
Birna hefur meðal annars birt sketsa um þriðju vaktina og svokallaðar „Facebook-mömmur“ á hrekkjavökunni, en nú síðast tók hún fyrir litríka hlaupið Color Run þar sem fjölskyldur spreyta sig á því að fara fimm kílómetra, hlaupandi, skokkandi eða gangandi, innan um litabombur.
Viðburðurinn er sérstaklega vinsæll meðal fjölskyldufólks og var Birna að sjálfsögðu mætt á staðinn og lék eftir „80% mæðra á samfélagsmiðlum“ þann daginn sem keppast við að ná sem skemmtilegustum myndum og myndböndum frá hlaupinu til að birta á miðlum sínum.
@birnaruneiriks93 Ég að borða pizzuna er ekki leikið
♬ original sound - Birna Rún Eiríksdótt