Enski stórleikarinn Ian McKellen var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa dottið af sviði í Noël Coward-leikhúsinu í Lundúnum í kvöld. Guardian greinir frá.
Leikarinn, sem er 85 ára gamall, var í hlutverki sínu sem John Falstaff í bardagasenu í leikritinu Player Kings þegar slysið átti sér stað.
Leikarinn kallaði kvalinn eftir aðstoð og kom strax starfsfólk leikhússins til aðstoðar.
Leiksýningunni var í kjölfarið aflýst og áhorfendum gert að yfirgefa leikhúsið.