Kaleo gefur út lagið Sofðu unga ástin mín

Jökull Júlíusson, söngvari, gítarleikari og lagahöfundur í hljómsveitinni Kaleo.
Jökull Júlíusson, söngvari, gítarleikari og lagahöfundur í hljómsveitinni Kaleo. Ljósmynd/Aðsend

Hljómsveitin Kaleo gefur í dag út lagið Sofðu unga ástin mín sem er angurvær vögguvísa sem flest börn þekkja.

Þetta kemur fram í tilkynningunni frá hljómsveitinni.

„Mér hefur alltaf fundist þessi vögguvísa vera ákaflega falleg með sínum dapurlega undirtón og hefur hún alltaf haft mikla þýðingu fyrir mig. Móðir mín söng þetta lag fyrir mig sem barn og ég er nokkuð viss um að þetta er fyrsta lagið sem ég heyrði.  Mig langaði því að gefa lagið út á þjóðhátíðardag okkar Íslendinga enda er þessi vögguvísa eins íslensk og þær geta orðið,“ er haft eftir Jökli Júlíussyni, söngvara, gítarleikara og lagahöfundar í Kaleo.

Hituðu upp fyrir Rolling Stones

Kaleo hitaði upp fyrir Rolling Stones í vikunni í bandarísku borgunum New York og Philadelphia. Hljómsveitin mun í framhaldinu hefja tónleikaferðalag sitt um Norður-Ameríku og Evrópu sem standa mun allt þetta ár. 

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur lagt hart að þér að undanförnu og átt því skilið að eiga rólegan dag og gera aðeins það sem þig langar til. Njóttu samvista við vini þína og ættingja.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
3
Torill Thorup
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Þú hefur lagt hart að þér að undanförnu og átt því skilið að eiga rólegan dag og gera aðeins það sem þig langar til. Njóttu samvista við vini þína og ættingja.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
3
Torill Thorup
4
Birgitta H. Halldórsdóttir