Friends-leikkonan Lisa Kudrow er að horfa á þættina um vinina í New York um þessar mundir til þess að rifja upp tímann með leikaranum Matthew Perry. Perry lést í október 54 ára gamall.
Kudrow á erfitt með að horfa á sjálfa sig á skjánum. „Í hreinskilni sagt þá gat ég ekki horft á þá af því það er of vandræðalegt að horfa á sjálfa þig. En ef þú lætur þetta snúast um Matthew þá er þetta í lagi,“ segir Kudrow í viðtali við The Hollywood Reporter.
Kudrow segist skemmta sér nú þegar hún horfir á Friends.
„Ég hlæ upphátt og allir eru bráðfyndnir,“ segir Kudrow og segist vera mjög hrifin af mótleikurum sínum. Hún talar sérstaklega vel um hæfileika Perry til þess gera grín. „Stundum hlæ ég jafnvel að því sem ég gerði,“ segir Kudrow. Hún segir reyndar vandræðalegt þegar einhver kemur að henni heima þegar hún er að horfa á Friends.