Leikarinn Alec Baldwin segir hjónaband hans og eiginkonu sinnar, Hilariu Baldwin, ekki alltaf hafa verið dans á rósum. Hjónin fögnuðu brúðkaupsafmæli um helgina.
Leikarinn segir á Instagram-síðu sinni að hann hafi fallið fyrir konu sinni frá fyrstu kynnum. Þau giftu sig í júní 2012.
„Þrátt fyrir að ég hafi fallið fyrir þér á fyrstu mínútu þá var það draumur að kvænast þér. Í gegnum súrt og sætt, upp og niður. Sjö börn (plús Ireland, Andre og Holland). Fjórir hundar. Fjórir kettir. Þrátt fyrir erfiða tíma hjá mér myndi ég ekki vilja breyta neinu. Til hamingju með brúðkaupsafmælið. Þú ert gjöfin mín,“ skrifaði Baldwin en dótturina Ireland átti hann með fyrrverandi eiginkonu sinni.
Hilaria Baldwin minntist líka á erfiðleika í færslu sem hún skrifaði í tilefni tímamótanna.
„Það hefur ekki bara verið mikil sæla heldur líka sorglegir viðburðir,“ skrifaði frú Baldwin og bætti við að það væri óumflýjanlegt að upplifa erfiðleika. Sagði hún þau hafa upplifað ótrúlega mikla ást en líka hræðilegan sársauka.