Fyrrverandi sakar Cyrus um ofbeldi

Billy Ray og Firerose Cyrus.
Billy Ray og Firerose Cyrus. Skjáskot/Instagram

Tón­list­arkonan Firerose segir að Billy Ray Cyrus hafi verið erfiður og haft strangar reglur á meðan á hjónabandinu stóð.

Tónlistarmaðurinn Billy Ray Cyr­us er einna þekkt­ast­ur fyr­ir að vera faðir Miley Cyrus auk þess sem hann átti smell­inn Achy Brea­ky Heart. Hann var giftur Firerose í sjö mánuði og ganga þau nú í gegnum erfiðan skilnað þar sem þau bæði saka hvort annað um einhvers konar ofbeldi.

Í viðtali við Page Six segir Firerose að Cyrus hafi viðhaft kerfisbundna einangrun þannig að hún átti erfitt með að finna hugrekki til þess að fara úr sambandinu.

„Hann var með mjög strangar reglur. Ég átti ekki bíl. Ég mátti bara fara til kírópraktors og einu sinni í mánuði mátti ég láta laga neglurnar mínar,“ sagði Firerose.

Þá máttu ættingjar hennar ekki heimsækja þau á býlið þeirra sem er nálægt Nashville. Hún segist hafa verið einangruð frá öllum í lífi sínu ef frá er talinn vímuefnaráðgjafinn hennar.

„Ef ég þurfti að senda skilaboð þá átti ég að lesa það upphátt fyrir hann. Sama átti við um tölvupósta.“

„Hann átti það til að taka ofsaköst og öskra á mig hástöfum. Ég varð skelfingu lostin. Þetta var ólógískt og ógnvekjandi. Eina stundina kallaði hann mig heimska hóru og þá næstu var ég ástin í lífi hans.“

Cyrus átti það einnig til að hætta að tala við hana dögum saman. „Ég dró mig í hlé. Ég var hrædd að tala.“ Þá er Firerose hrædd um að hann muni nota það gegn henni í skilnaðarferlinu það erfiða tímabil sem hún átti áður en hún varð edrú.

„Ég held að hann muni nota allt gegn mér. Hann er vondur maður.“

Sjálfur hefur Cyrus neitað öllum ásökunum um ofbeldi og sakað Firerose um að einangra sig og veitast að sér með orðum og athöfnum.
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vendu þig af því að keyra skoðanir þínar ofan í annað fólk. Eitthvað angrar þig í umhverfinu, og þegar þú setur hendur á það veistu hvað það er og getur losað þig við það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Torill Thorup
4
Yrsa Sigurðardóttir
5
Sarah J. Naughton
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vendu þig af því að keyra skoðanir þínar ofan í annað fólk. Eitthvað angrar þig í umhverfinu, og þegar þú setur hendur á það veistu hvað það er og getur losað þig við það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Torill Thorup
4
Yrsa Sigurðardóttir
5
Sarah J. Naughton