Hegðun Roberts vakti athygli á tónleikum

Julia Roberts var meðal gesta á tónleikum Taylor Swift í …
Julia Roberts var meðal gesta á tónleikum Taylor Swift í Dublin á sunnudag. Samsett mynd

Aðdáendur einnar vinsælustu tónlistarkonu í heimi, Taylor Swift, voru allt annað en sáttir við framkomu bandarísku leikkonunnar Juliu Roberts á nýafstöðnum tónleikum Swift í Dublin. 

Roberts, þekkt fyrir leik sinn í kvikmyndum á borð við Pretty Woman, Notting Hill, Erin Brockovich og Steel Magnolias, sást gæla við kærasta Swift, NFL-leikmanninn Travis Kelce, en bæði nutu þau tónleikanna frá sérstöku VIP-svæði. 

Myndskeið af samskiptum Roberts og Kelce hefur farið líkt og eldur í sinu um netheima og eru aðdáendur Swift, hinir svokölluðu Swifties, sammála um að leikkonan hafi farið yfir strikið en hún sást meðal annars nudda axlir íþróttakappans og strjúka honum. Aðrir hafa þó komið Roberts til varnar og segja hana sýna hlýlega og vingjarnlega framkomu.

Roberts, 56 ára, er gift kvikmyndatökumanninum Danny Moder og á með honum þrjú börn á táningsaldri.

Hvorki Kelce né Roberts hafa tjáð sig um myndskeiðið. 

@kelleyfarrelly Hugging julia roberts no less!!☘️🧡💚🤸‍♀️ #taylorswift #eras #erasdublin #traviskelce ♬ original sound - Hannah Brown



mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vendu þig af því að keyra skoðanir þínar ofan í annað fólk. Eitthvað angrar þig í umhverfinu, og þegar þú setur hendur á það veistu hvað það er og getur losað þig við það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Torill Thorup
4
Yrsa Sigurðardóttir
5
Sarah J. Naughton
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Vendu þig af því að keyra skoðanir þínar ofan í annað fólk. Eitthvað angrar þig í umhverfinu, og þegar þú setur hendur á það veistu hvað það er og getur losað þig við það.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Torill Thorup
2
Torill Thorup
4
Yrsa Sigurðardóttir
5
Sarah J. Naughton