Leikkona Julia Roberts fagnar ástinni en hún og eiginmaður hennar, Danny Moder kvikmyndagerðarmaður, giftu sig fyrir 22 árum þann 4. júlí 2002.
Parið fagnaði á samfélagsmiðlinum Instagram með mynd af þeim hjónum fyrir 22 árum en þar eru þau yfir sig ástfangin í þéttum faðmlögum kyssast rembingskossi.
Ástin kviknaði við tökur á myndinni The Mexican og þau giftu sig í laumi tveimur árum seinna. Síðan þá hafa þau eignast saman tvíburana Phinneas og Hazel og soninn Henry.
Leikkonan segir að sinn heitelskaði hafi alltaf leitt fjölskylduna áfram á yndislegan hátt og að hann sýndi henni snemma hversu tilfinningaríkt og fallegt lífið getur verið.