Réttarhöld að hefjast yfir Baldwin

Baldwin í dómsalnum í gær.
Baldwin í dómsalnum í gær. AFP/Ross D. Franklin

Rétt­ar­höld yfir Hollywood-leik­ar­an­um Alec Baldw­in hefjast í dag þegar kviðdóm­ur verður val­inn. Baldw­in er sakaður um mann­dráp af gá­leysi á tökustað kvik­mynd­ar­inn­ar Rust árið 2021 og þarf kviðdóm­ur­inn að ákveða hvort dauði kvik­mynda­töku­manns mynd­ar­inn­ar hafi verið hon­um að kenna.

Baldw­in beindi leik­muna­byssu að Halyna Hutchins á meðan á æf­ingu stóð þegar al­vöru skot hljóp úr byss­unni. Hutchings lést, auk þess sem leik­stjóri mynd­ar­inn­ar særðist.

Baldwin á leið úr dómshúsinu.
Baldw­in á leið úr dóms­hús­inu. AFP/​Frederic J. Brown

Baldw­in, sem er 66 ára, seg­ist ekki hafa vitað að byss­an hafi verið hlaðin og að hann hafi ekki held­ur tekið í gikk­inn. Sak­sókn­ar­ar segja að leik­ar­inn hafi hegðað sér kæru­leys­is­lega á tökustaðnum og að hann hafi ít­rekað breytt vitn­is­b­urði sín­um síðan at­vikið varð í októ­ber 2021.

Reiknað er með því að opn­un­ar­ræður lög­manna verði flutt­ar í mál­inu á morg­un í rík­inu Nýju-Mexí­kó. Rétt­ar­höld­in eiga að standa yfir í tíu daga.

Baldw­in mætti í dómsal í gær þar sem lokaund­ir­bún­ing­ur stóð yfir vegna rétt­ar­hald­anna. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Krabbi

Sign icon Nýttu þær auðlindir sem þú hefur aðgang að til að bæta umhverfi þitt, bæði í vinnunni og á heimilinu. Reyndu að forðast mikið álag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Moa Hern­gren
3
Torill Thorup
4
Stein­dór Ívars­son
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Krabbi

Sign icon Nýttu þær auðlindir sem þú hefur aðgang að til að bæta umhverfi þitt, bæði í vinnunni og á heimilinu. Reyndu að forðast mikið álag.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
2
Moa Hern­gren
3
Torill Thorup
4
Stein­dór Ívars­son
Loka