„Það er engin hljómsveit, ekkert, sem er of ómerkileg til að vera þarna inni,“ segir Helgi Jónsson, ritstjóri Glatkistunnar, sem er einn stærsti gagnagrunnurinn um íslenskt tónlistarlíf.
„Það hafði meira að segja komið fyrir að það birtist þarna umfjöllun um hljómsveit sem var aldrei til. Því að hún var bara hugmynd.“
Helgi ræddi um verkefnið í Dagmálum en vefsíða hans fagnar tíu ára afmæli í haust.
Aðspurður kveðst Helgi aftur á móti ekki muna hvert nafn þeirrar hljómsveitar á að hafa verið.
Hann tók samt þá ákvörðun að halda henni inni á vefnum.
„Mér finnst bara fínt að hafa hana þarna,“ segir Helgi í nýjasta þætti Dagmála en hann veltir því nú fyrir sér hvort tími sé kominn til að leggja verkefnið niður, enda er tímakaupið lágt í sjálfboðavinnu.